Júlí
Árni Sigurbergsson á TF-ART á Hornafjarðarflugvelli
Árni Sigurbergsson á TF-ART á Hornafjarðarflugvelli
Árni Sigurbergsson á TF-ART á Hornafjarðarflugvelli

28.07.2004 Júlí

Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum

Hornfirðingurinn Árni Sigurbergsson frá Svínafelli í Nesjum starfaði sem flugmaður í 50 ár hjá íslensku flugfélögunum Flugfélagi Íslands og Loftleiðum á áætlunarleiðum félaganna bæði innanlands og í millilandaflugi, hann er nú hættur sökum aldurs. Árni kom fyrir stuttu á sinni einkaflugvél til Hornafjarðar þar sem fréttamaður vefsins hitti hann á flugvellinum. Flugvélina smíðaði Árni sjálfur og tók smíðin sjö ár. "Ég byrjaði á smíðinni árið 1992 og lauk henni 1999 en þá átti eftir að kaupa mótorinn og setja vélina saman og það tók langan tíma líklega alls 3-4000 tíma í heildina" segir Árni.Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum og svo þurfti að fá gott pláss til að setja hana saman og fyrsta flugið á henni var 2.júlí 2002. Tegundarheiti flugvélarinnar er Van’;s RV-6 lágþekja 2.ja manna, þyngd 1080 pund, hámarksþyngd 1650 pund með eldsneyti, tveim mönnum og farangri. Hún tekur 38 gallon af bensíni og flugþol er 4 ½ klst. reiknað er með 300 m flugbraut en getur komist af með 100 – 200 m.

Árni segir að þetta sé ein hraðfleygasta tveggja manna vélin hér á landi með hámarkshraða 180 hnúta en einnig er hægt að fljúga henni á 45 hnúta hraða. Farflugshraðinn er um er um 140 hnútar og er vélin um 1 klst. og 15 mín milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Flugvélin er gefin upp fyrir allt að 25 þúsund feta hæð en Árni lét sér nægja að vera í 12 þúsund fetum þegar hann kom til Hornafjarðar. Hann er búinn að fljúga eitthvað á annað hundrað tíma á vélinni, segist fara svona að gamni sínu og oft skreppa börnin hans ( sem bæði eru í fluginu) þau Berglind og Hannes með honum.

Við Berglind flugum hringferð um landið um daginn, fórum frá Reykjavík til Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar , Mývatns, Egilsstaða, Hafnar og þaðan til Reykjavíkur segir Árni og bætir við að þetta sé í fyrsta sinn sem hann hafi farið svona hringferð og flugstundirnar á leiðinni voru fimm og hálf. Árni segist hafa verið heppinn á sínum flugmannsferli og aldrei lent í neinum hremmingum og hann ætlar að njóta þess að fljúga á litlu flugvélinni sinni meðan líf og heilsa endist.

Sjá fleiri myndir


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica