Júlí
Vötn í Stafafellsfjöllum (@GBÓ)
Vötn í Stafafellsfjöllum (@GBÓ)

27.07.2004 Júlí

Skipulögð dagskrá í Stafafelli um Verslunarmannahelgina

Um Verslunarmannahelgina verður skipulögð útivistar- og tónlistardagskrá að Stafafelli í Lóni. Fagnað verður opnun glæsilegrar göngubrúar (95m) við Eskifell og opnun gönguleiðar frá Víðidal um Kollumúla og Eskifell til byggðar. Á laugardagsmorgni verður ekið inn að hinni nýbyggðu göngubrú og farið kl. 10:00 í tveggja klukkutíma gönguferð um Eskifell. Á hádegi á laugardag verður lagt af stað í um þriggja tíma göngu um Austurskóga í Smiðjunes. Á sunnudegi verður gengið frá Smiðjunesi kl. 10:00 upp að Melrakkafelli, ofan í Hvannagil þar sem litir eru fjölbreyttir og gilið sérlega fallegt, og þaðan yfir að Vötnum. Eftir hádegi er gengið meðfram Jökulsá í Lóni og endað í kirkjunni á Stafafelli. Harmonikkuleikur og söngur verður á völdum áningarstöðum. Leiðsögumaður verður Gunnlaugur B. Ólafsson.

Vötn nefnist kerlaga staður innarlega í sumarhúsabyggðinni á Stafafelli. Þar verður tónlistardagskrá seinnipart laugardags og sunnudags. Sigtryggur Baldursson áður kenndur við Sykurmolana einnig þekktur fyrir flutning sinn á lögum Hauks Morthens,mun ásamt söngfólki úr Sumaróperunni, Bogomil Font og Vigni Stefánssyni píanóleikara flytja valin lög úr söngleiknum Happy End eftir þá Kurt Weill og Bertold Brecht, en Sumaróperan frumsýnir söngleikinn þann 7. ágúst í Íslensku Óperunni (Gamla Bíó). Einnig verða flutt valin lög úr fleiri söngleikjum.

"Vatnatónleikar" þeirra verða kl. 17:00 á laugardag og kl. 20:00 á sunnudag og er aðgangseyrir á tónleikana 1000 kr.Komið verður upp sviði á vatnsbakkanum, hátalarar og logandi kyndlar verða meðfram vatninu.
Á laugardagskvöld munu heimamenn setja saman dagskrá sem endar með varðeldi og fjöldasöng. Ingimar Einarsson harmonikkuleikari leikur á nikkuna í fundarhúsinu öll kvöldin og þá getur fólk fengið sér snúning því ekki verður neinn útidansleikur segir Gunnlaugur Ólafsson.

Við eigum von á að fjölmennt geti orðið í Stafafellsfjöllum um helgina og það hefur komist sú hefð á að sumarbústaðareigendur hafa verið þar yfir verslunarmannahelgina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica