Júlí
Ragnhildur Magnúsdóttir læknir
Ragnhildur Magnúsdóttir læknir

27.07.2004 Júlí

Búið að ráða yfirlækni á heilsugæslustöðuna

Ragnhildur Magnúsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn en hún hefur starfað við stofnunina í sumar. Inga Jóna Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins segir útlit fyrir að það takist að manna aðra læknastöðu fljótlega í 5-6 mánuði. Við getum því sagt að að þetta líti bara þokkalega út miðað við hvernig læknamálin hafa verið hjá okkur. Læknaskipti hafa verið ansi ör og það sem af er þessu ári hafa 10 til 12 læknar verið hér tímabundið. Það verður ekki síst gott fyrir íbúa héraðsins og starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar að það komist einhver festa á í þessum málum.

Staða framkvæmdastjóra við heilsugæslustöðina hefur verið auglýst og er umsóknarfrestur til 8. ágúst. Rekstur heilbrigðisþjónustunnar hefur verið erfiður að undanförnu og höfum við fengið Ásgeir Ásgeirsson frá heilbrigðisstofnuninni á Akranesi til starfa hér með okkur tímabundið við að greina nákvæmlega stöðuna og hvað best er til úrbóta til að koma rekstrinum í réttan farveg, segir Inga Jóna.

Núna eru auk Ragnhildar tveir læknanemar starfandi við heilsugæslustöðina.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica