Júlí
Frá tjaldstæðinu á Höfn
Frá tjaldstæðinu á Höfn

27.07.2004 Júlí

Um 90% ökumanna með beltin spennt á hringveginum

Mikil umferð var í nágrenni Hafnar um helgina og mátti ekki á milli sjá hvort fleiri væru á leið austur eða að koma að austan. Aldrei hefur verið eins mikið af húsbílum, bílum með hjólhýsi eða fellihýsi og verið hefur undanfarið. Lögreglan á Höfn segir að engin umferðaóhöpp hafi orðið um helgina svo vitað sé en hraði í umferðinni sé alltof mikill og hafa margir verið teknir fyrir hraðakstur og í dag tók lögreglan einn á 140 km hraða í nágrenni Hafnar. Lögreglan hefur kannað bílbeltanotkun undanfarna daga og segir að innanbæjar hafi ástandið mikið batnað og notkun aukist. Á hringveginum eru rúm 90 % þeirra sem lögreglan hefur skoðað verið með beltin spennt og eins er með útlendingana.
Þar sem mesta umferðarhelgi ársins eru það tilmæli lögreglunnar að ökumenn stilli hraðanum í hóf og sýni tillitssemi og geri sitt til að umferðin megi verða slysalaus.

Lögreglan mun herða allt eftirlit í umferðinni næstu daga og ekki síst með hraðakstrinum og þeir sektaðir sem það eiga skilið. “ Ferðafélaganum “ sem í eru ýmsar gagnlegar leiðbeiningar handa þeim sem ferðast um landið, hefur verið dreift á helstu viðkomustaði ferðafólks og því upplagt að taka hann með.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica