Styrktarsamningur undirritaður til þriggja ára
Knattspyrnudeild Sindra og Esso endurnýjuðu styrktarsamning sem verið hefur í gangi síðustu ár þar sem sérstök áhersla er lögð á að styrkja yngri flokka knattspyrnudeildar Sindra. Undirskriftin fór fram þegar Vestrahorn, nýja Þjónustumiðstöðin var formlega tekin í notkun í síðustu viku. Samningurinn sem er til þriggja ára felur m.a. í sér að Esso kaupir búninga á tvö lið í yngri flokkunum og verður búningurinn með Esso merkinu að framan og Safnkorti að aftan. Einnig fær knattspyrnudeildin fjárhæð í hvert skipti sem einhver verslar og notar safnkort Esso hér á Höfn. Knattspyrnudeildin vill því hvetja styrktaraðila að nota kortið og þá um leið styrkja yngri deildirnar hjá knattspyrnudeildinni.
Esso er einn af þeim stóru styrktaraðilum knattspyrnudeildar Sindra en auk Esso er Skinney-Þinganes, Landsbanki Íslands Höfn og Olís að styrkja deildina.





Skrifa athugasemd