Leikara vantar í vel sett víkingaþorp
Aðstendur kvikmyndarinnar um Bjólfskviðu leita nú að fimmtán til tuttugu leikurum í aukahlutverk og hafa þeir fengið Leikfélag Hornafjarðar til að aðstoða við leitina. “Okkur vantar hraustlega karlmenn sem eru víkingalegir í útliti, helst vel skeggjaða og ef ekki þá að þeir geti láti sér vaxa skegg fram að upptöku segir Magnús J. Magnússon hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Einnig er leitað að konum sem passa í hlutverk þeirra kvenna sem eru í víkingaþorpinu. Í þorpinu sem á að vera vel sett víkingaþorp eiga að vera jarlar og hraustmenni. Stefnt er á að takan fara fram í byrjun september n.k. Búið er að smíða hluta af leikmyndinni í fjörunni fyrir neðan veginn út á Stokksnes, ekki langt frá Almannaskarði.
Þeir sem hafa telja sig passa í hlutverkin er bent á að mæta í Hlöðuna á Fiskhól hjá Leikfélagi Hornafjarðar í kvöld kl. 20, þar munu verða teknar myndir af þeim sem mæta.





Skrifa athugasemd