Flugeldasýning á Jökulsárlóni
Eins og undanfarin ár þá verður flugeldasýning á Jökulsárlóni um verslunarmannahelgina. Flugeldasýningin á lóninu var upphaflega aðeins fyrir starfsmenn og hluti af gleðskap sem haldin var í lok sumarvertíðarinnar. Sýningin þótti svo stórkostleg að staðarhaldarinn Einar Björn Einarsson var hvattur til að hafa hana opna og gefa öðrum tækifæri á að vera þar viðstöddum. Á síðasta ári var svo flugeldasýningin auglýst að hún væri öllum opin og mættu þá um 1200 manns sem komu víða að til að upplifa þá stórkostlegu sýn þegar flugeldum var skotið á loft af jöklum út á lóninu og sjá þegar flugeldarnir lýstu upp umhverfið og sköpuðu birtu sem engum líður úr minni sem þar voru.
Ákveðið hefur verið að nota flugeldasýninguna til að styrkja Björgunarfélag Hornafjarðar með því að láta kosta 500 krónur fyrir fullorðna inn á svæðið en frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Sýningin mun hefjast á miðnætti n.k. laugardagskvöld.





Skrifa athugasemd