Ekki skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku
Félagar úr Harmonikkufélagi Hornafjarðar tóku þátt í Samgönguhátíðinni í Öræfum á dögunum. Þegar samkomugestir komu að vatnadrekanum bárust harmonikkutónarnir á móti hópnum en þar höfðu spilararnir komið sér fyrir í tjaldi á rétt við drekann, sex með harmonikkur, einn trommuleikari og einn með bassa. Harmonikkufélag Hornafjarðar var stofnað 1993 og eru félagar 26. Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson er æfingastjóri og er hann ásamt Zóphoníasi Torfasyni, að sögn Arnar Arnarsonar ( Bróa), höfuð og herðar harmonikkufélagsins. Virkir spilarar þ.e. þeir sem koma fram við hin ýmsu tækifæri og spila, eru um 10 og hinir styðja félagsskapinn með ráð og dáð enda ekkert skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku eða önnur hljóðfæri bara vera með ánægjunnar vegna.
Það er ekkert kynslóðabil í þessum félagsskap okkar segir Brói og þar eru bæði konur og karlar á öllum aldri. Í fyrra var okkar félag valið til að koma og spila á harmonikkuhátíðinni í Reykjavík, þeir velja árlega utanbæjarfélag til að taka þátt í hátíðinni. Þegar landsmót harmonikkufélaga eru haldin tökum við þátt í þeim og það næsta verður á Norðfirði 2005.





Skrifa athugasemd