Hús Kára og slökkviliðsins í Öræfum að verða tilbúið
Verið er að leggja síðustu hönd á smíði húss björgunarsveitarinnar Kára og Slökkviliðsins í Öræfum. Húsið er límtréshús um 300 fermetrar að stærð og er skammt neðan við söluskálanum í Freysnesi.. Björgunarfélagið á hús á Fagurhólsmýri fyrir annan björgunarsveitarbílinn og búnað sveitarinnar en hús vantaði fyrir slökkvibílinn og brimdrekann og verða þeir í nýja húsinu. Bygging hússins er mikið átak fyrir þessi félög en nauðsynin er mikil. Vel hentar að hafa björgunarbíla staðsetta sín hvoru megin við aðal óveðurssvæðið sem er austan við Svínafell og að Fagurhólsmýri.
Á útkallslista björgunarsveitarinnar Kára eru 20 menn en hjá slökkviliðinu eru allir vinnufærir menn í Öræfasveit skráðir því það er þegnskylduvinna að taka þátt í slökkvistarfi þar.





Skrifa athugasemd