Júlí
Kindur við þjóðveg nr.1 (úr myndasafni)
Kindur við þjóðveg nr.1 (úr myndasafni)

22.07.2004 Júlí

Slapp með skrámur en bíllinn ónýtur

Bílvelta varð á þjóðvegi eitt rétt austan við Flatey á Mýrum á þriðjudagskvöldið en ökumaður sem var einn í bílnum slapp með skrámur og eymsli í hálsi. Tildrög slyssins voru þau að kind stökk upp á veginn rétt framan við bílinn og náði ökumaður hennar að forða ákeyrslu en við það lenti bíllinn útaf og valt en kindin slapp. Bifreiðin sem er Mazda árgerð 1992 er ónýt og er tjón unga ökumannsins tilfinnanlegt þar sem bifreiðin var ekki kaskótryggð og hann búinn að safna fyrir bílnum undanfarna mánuði og er að fara í skóla í Reykjavík í haust. Verðmæti bifreiðarinnar var tæplega 190 þúsund og var eigandinn að koma frá Reykjavík þar sem hann keypti bílinn og átti eftir um 20 mínútna akstur heim til sín. Ökumaður var í bílbelti og á 90 km hraða þegar kindin stökk fyrir bílinn.

Á hverju sumri verður mikið eignatjón af völdum búfjár og einnig hafa orðið alvarleg slys á fólki í Austur Skaftafellssýslu þar sem búfénaður hefur greiðan aðgang að þjóðvegi eitt og er það með öllu óskiljanlegt að bæjaryfirvöld á staðnum skuli ekki koma í veg fyrir lausagöngu kinda og stundum stórgripa við og á þjóðveginum víðast hvar í sýslunni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica