Júlí
Vestrahornshúsið við Vesturbraut
Vestrahornshúsið við Vesturbraut

21.07.2004 Júlí

Glaður dagur í Vestrahorni

Á fimmtudag verður nýi Essoskálinn í Vestrahornshúsinu við Vesturbraut formlega tekinn í notkun og af því tilefni verður margt gert til gamans, Karlakórinn Jökull tekur lagið, það verða haldnar stuttar ræður, börnunum verða gefnar blöðrur og Emmessís, ýmis tilboð verða í gangi svo sem 6 króna afsláttur á hverjum eldsneytislítra, kveikt verður á grillinu og öllum gefið að smakka. Þetta er önnur ESSO stöðin á stuttum tíma sem er endurbyggð á landsbyggðinni en ESSO stöðin á Blönduósi var opnuð fyrir rúmum mánuði síðan.

Þá er bara að mæta í Vestrahornshúsið og gera sér glaðan dag frá kl. 13-15. Formleg opnun verður kl.14:00 og verður þá klippt á borðann.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica