Júlí
Reynir Arnórsson umferðarfulltrúi
Reynir Arnórsson umferðarfulltrúi

21.07.2004 Júlí

Ýmislegt má betur fara í umferðinni

Bílbelta notkun hér á Hornafirði hefur batnað frá því sem var í fyrra, svo er lögreglunni fyrir að þakka því þeir hafa tekið á þessum málum, segir Reynir Arnórsson umferðafulltrúi. Hvað farsímanotkun í akstri varðar, þar sem ekki er notaður handfrjáls búnaður, hefur ástandið stórversnað og er full ástæða fyrir ökumenn að taka það mál til endurskoðunar. Reynir hefur í samstarfi við slysavarnarfólk hér kannað hvar úrbóta er þörf í umferðarmálum og í áframhaldi af því haft samband við viðkomandi aðila um úrbætur. Ég er t.d. margbúinn að benda á að mála þurfi grindverkið við kröppu beygjuna við endann á Ránarslóð vestanmegin, það myndi gera hana mun sýnilegri, síðan eru nokkur gatnamót sem eru slysagildrur, þar þarf að setja spegla, fjarlægja skilti sem birgja sýn og eins vantar stöðvunarskildu merki segir Reynir.

Því miður er það þannig að þegar við höfum farið á bæjarskrifstofuna og talað við menn þessu viðkomandi virðast þeir mjög ánægðir með ábendingarnar, skoða staðina og vilja endilega lagfæra þetta, en svo er ekkert gert. Ég vil taka það fram, segir Reynir , að Hornafjörður er ekki eini staðurinn sem svona er á, þeir eru fleiri. Gott er þó að sjá að verið er að mála gangbrautir hér og eiga þeir sem um það sjá hrós fyrir það.

Reyni finnst hraðinn í umferðinni hafa batnað en segir að þeir sem eru með vagna í eftirdragi á malarvegum þurfi að sýna meiri tillitssemi og draga mikið úr hraðanum þegar þeir mæta öðrum ökutækjum. Þetta er fjórða sumarið sem Reynir starfar sem umferðarfulltrúi á svæðinu frá Kirkjubæjarklaustri til Þórshafnar og er það Slysavarnafélagið Landsbjörg og Umferðastofa sem kosta þessa starfsemi ásamt Toyotaumboðinu sem leggur til bíl, Essó leggur til bensín og Sjóvá Almennar tryggja bílinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica