Aukning húsbíla á þjónustumiðstöðinni
Það hefur færst í aukana að gestir á þjónustumiðstöðinni á Höfn eru á húsbílum enda er sérútbúin aðstaða þar fyrir þá eins og best gerist. Þar geta þeir fengið tengingu við rafmagn og eins er boðið upp á losun á ferðaklósettum sem ekki er mjög algengt á tjaldstæðum. Síðustu nótt voru hér m.a. 40 húsbílar í hópferð. Þetta er fjórða sumarið sem Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir reka þjónustumiðstöðina og segir Hugi að það sé mikil aukning á húsbílum, tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum. Samanborið við júlímánuð í fyrra þá er heldur meiri gisting á tjaldstæðinu þetta árið.
“Stærsti hópurinn sem gistir á tjaldstæðinu eru íslendingar, þjóðverjar, hollendingar og swisslendingar, svo hafa Danir verið að sækja mikið á og heimsækja okkur frændur” segir Hugi. Það er ekki mjög algengt orðið að íslendingar tjaldi á gamla mátann, þó kemur það fyrir. Þegar gestirnir hafa komið sér fyrir á tjaldstæðinu þá er algengt að þeir nýti sér sturtuaðstöðuna sem þar er í boði, taki rúntinn um bæinn og fari jafnvel á einhvern veitingastaðinn til að fá sér að borða.
Austurleið er með aðstöðu í Þjónustumiðstöðinni og þaðan fara og koma daglega áætlunarbílar til og frá Egilsstöðum og Reykjavík auk ferðanna sem farnar eru upp á jökul. Ragnar í Þorgeirsstöðum sækir þá hópa sem eiga bókað í ferðir upp á Lónsöræfi frá þjónustumiðstöðinni.





Skrifa athugasemd