Heilsa og útlit flytur í Sporthöllina
Snyrtistofan Heilsa og útlit á Höfn er að flytja af Bugðuleirunni í Sporthöllina og opnar þar um miðjan ágúst. Sigrún Sveinbjörnsdóttir eigandi stofunnar segir að starfsemin verði að mestu óbreytt því sem verið hefur og hún verður bæði með verslunina og allar þær meðferðir sem boðið hefur verið uppá og vonast hún til að geta bætt fleiru við sig. Ég verð með mína starfsemi þar sem verslunin í Sporthöllinni er og fæ þar vel einangrað herbergi þar sem starfsemi stöðvarinnar truflar ekki á neinn hátt. Ég held að þessi starfsemi mín passi vel við líkamsræktarstarfið og að fleiri komi til með að nýta sér þetta saman. Sigrún er með hand- og fótsnyrtingu fyrir karla og konur, andlitsböð og hreinsanir, varanlegar háreyðingar í andliti og einnig vaxmeðferð til að taka hár af fótleggjum og undan höndum.
Sigrún hefur verið með nudd en segir það óvíst að svo verði áfram en þá vonast hún til að geta bætt inn leirvafningum, hreinsunarvafningum og fleiru þess háttar.
Tvö ár eru síðan Heilsa og útlit var opnað og er Sigrún mjög ánægð með þær viðtökur sem starfsemi hennar hefur fengið og segist hún eiga stóran hóp fastra viðskiptavina.





Skrifa athugasemd