Júlí
Félagar í Citroen-braggaklúbbum á Þjónustumiðstöðinni
Félagar í Citroen-braggaklúbbum á Þjónustumiðstöðinni

20.07.2004 Júlí

Citroenbílaeigendur á ferðinni

Félagar úr hinum ýmsu Citroenkúbbum frá 7 þjóðlöndum höfðu næturdvöl á tjaldstæðinu á Höfn og að sjálfsögðu voru þeir á gömlum og góðum Bragga Citroenbílum að undanskildum bílunum sem fararstjórarnir voru á sem voru Laplander og Unimok. Hópurinn kom til Íslands með Norrænu og er búinn að ferðast um landið og skoða allar helstu náttúruperlur. Fararstjórar ferðarinnar Karen Valdur og Dan Johanson frá Danmörku eru nú að koma til landsins í 10 skipti og segir Karen hópinn mjög ánægðan með ferðina og tók hún sérstaklega fram að vegasamgöngur væru frábærar.

Citroen eigendurnir sem eru 19 og koma frá sjö löndum í Evrópu er félagar í hinum ýmsu Citroenklúbbum en markmið þessara klúbba er að Citroeneigendur haldi hópinn og hittist á heimsmótum sem eru haldin vítt og breitt um Evrópu annað hvert ár. Á þeim mótum koma allt að 4-5 þúsund Citroenbílaeigendur saman til að bera saman bækur sínar, kynnast viðkomandi landi þar sem mótið er haldið, borða góðan mat og skemmta sér saman í nokkra daga. Karen vissi ekki til þess að slíkur klúbbur væri starfræktur á Íslandi. Hópurinn hélt áleiðis til Djúpavogs og þaðan til Seyðisfjarðar þar sem þau halda utan með Norrænu á fimmtudag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica