Góður afli hjá krökkunum í lúruveiðiferð
Menningarmiðstöð Hornafjarðar bauð krökkum á lúruveiðar í morgun. Farnar voru tvær ferðir með 11 þátttakendur sem voru í öruggri umsjón Björns Arnarsonar og Gísla Karls Ágústssonar. Veðrið var eins og best verður á kosið og góð veiði út af Óslandinu og veiðimennirnir alsælir með ferðina og tvær körfur af lúru sem skipt var á milli þeirra. Lúra er Hornfirskt heiti yfir kola. Lúra var veidd á árum áður í Hornafirði, Skarðsfirði og var mikil búbót að fá nýmeti úr firðinum ásamt silungi og fugli.
Hér koma svo leiðbeiningar frá Ágústi Þorbjörnssyni um meðferð og matreiðslu á lúru:
Lúran var borðuð ný, soðin eða velt í raspi og steikt í smjöri. Lúran var hert þannig að hún var hausuð og slógdregin,dregin upp á band og hengd upp í rjáfur og hjalla. Yfir veturinn var lúran svo borðuð hert, skorin niður í mjóa strimla með roði og þvert á beinin og borðuð með smjöri. Lúran var einnig hleypt og það var áður fyrr gert þannig að hún var lögð á glóð eða vel heita eldavélarhringi og bökuð á bæði borð uns hún var orðin vel heit í gegn og sjá mátti að fiskurinn var byrjaður að losna frá beininu. Var hún þá tekin af glóðinni dýft niður í volgt vatn, lögð á þurrku og undin í henni milli fingra sér uns fiskurinn losnaði allur vel frá beini. Í dag eru rafabeltin klippt af lúrunni og lúran sett í brauðrist og hleypt þannig.. Nú er bara að kenna krökkunum aðferðina við að matreiða aflann.





Skrifa athugasemd