Júlí
Mikið líf á hafnarbakkanum
Það hefur verið líflegt á bryggjunni á Hornafirði undanfarin kvöld þegar trillurnar eru að landa og útlendir ferðamenn fylgjast vel með því. Fólk kemur mikið á bryggjuna og fylgist með þegar verið er að landa, skoðar í körin og margir vilja vita hvaða fiskar þetta eru segir Sívar Árni Scheving. Trillukarlar á Hornafirði hafa mokfiskað undanfarna daga og hefur afli verið frá tveim tonnum upp í fimm tonn á bát . Sívar sagði að mikið væri af ufsa í aflanum núna og er hann saltaður.
Mikil vinna er hjá Bestfiski og unnið fram á nótt og þar verður ekki lokað vegna sumarfría sama er að segja um saltfiskvinnslu hjá Skinney Þinganesi.





Skrifa athugasemd