Ný göngubrú styttir gönguleiðina í Morsárdal og Bægistaðarskóg.
Með tilkomu göngubrúar yfir Morsá sem vígð var af Sturlu Böðvarssyni samgöngumálaráðherra á Samgönguhátíðinni í Skaftafelli í vikunni opnast þeim sem ekki geta eða eiga auðvelt með að ganga upp brekkur og hæðir góð og greiðfær leið inn í Morsárdal og Bægistaðarskóg. Þegar farið er yfir göngubrúna styttist gönguleiðin inn í Morsárdal og Bægistaðarskóg úr þrem tímum í tvo miðað við leiðina yfir Skaftafellsheiði og gengið er á sléttlendi sem er í um 100 metra hæð. Leiðin sem farin hefur verið liggur frá Skaftafelli upp að Svartafossi þaðan áfram að Sjónarskeri og yfir Skaftafellsheiði sem er í 300 metra hæð. Þaðan er farið niður Grjótháls sem er brattur, grýttur og erfiður yfirferðar. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segir þá leið vera mörgum erfiða en með því að fara yfir göngubrúna er komin góð gönguleið fyrir alla.
Brúin er 30 metra löng, gerð úr voldugu röri úr rússnesku gæðastáli og gólf brúarinnar er úr timbri. Brúarsmiðir voru Ragnar Frank og Benedikt Steinþórsson, einnig voru þar að verki Björn á Brunnavöllum og Þorlákur í Svínafell. Ólafur Halldórsson á Tjörn sá um jarðvegsvinnu. Heildarverð brúarinnar með frágangi er um tvær og hálf milljón króna.





Skrifa athugasemd