Sindri sigraði Þrótt frá Reykjavík 1-0
Tveir leikir fóru fram á Sindravöllum í dag, meistaraflokkur Sindra mætti Einherja frá Vopnafirði og sigraði Einherji 2-1. Leikurinn var mjög jafn, hvorugt liðanna var að skapa sér tækifæri, óþarfa tími fór hjá báðum liðunum að deila við dómarann fremur en að einbeita sér að því að spila fótbolta. Sindri Ragnarsson skoraði fyrsta mark leiksins og Einherji jafnaði í lok fyrra hálfleiks þegar þeir skoruðu úr hornspyrnu, úrslitamarkið átti Einherji um miðjan seinni hálfleik. Meistaraflokkur Sindra er nú meðal neðstu liðanna í deildinni. Seinni leikurinn byrjaði kl.16 og var það 4 flokkur karla sem spilaði við Þrótt frá Reykjavík, fyrri leikur þeirra þar sem þeir kepptu í Reykjavík fór 4-3 fyrir Þrótt, en að þessu sinni sigruðu Sindramenn 1-0 með glæsilegu marki Hilmars Guðjónssonar.
Stelpurnar í 5 flokki (10 og 11 ára) héldu á Hnátumót KSÍ sem var haldið á Egilsstöðum í dag, þar spilaði A-lið Sindra 3 leiki, gerði jafntefli við Leikni Fáskrúðsfirði, 2-2, þær unnu síðan Hött 3-0 og Þrótt Neskaupsstað 3-1. B-lið Sindra vann B-lið Hattar 11-0 og annan leik við þá sömu 8-0, þær spiluðu síðan við A-lið hattar og sigruðu 2-1 – Frábær árangur hjá þeim. Áfram Sindri.





Skrifa athugasemd