Júlí
Kalli á Móhól gerir að silungnum
Kalli á Móhól gerir að silungnum

16.07.2004 Júlí

Sama hvar netunum er hent út, þau fyllast af silungi

Af og til sjáum við menn á árabátum út á firði þar sem þeir eru að vitja neta. Einn þeirra sem manna best þekkir fjörðinn og hefur stundað hann frá unga aldri er Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól) nú nýlega orðinn sjötugur. Fréttamaður vefsins hitti hann þar sem hann var að gera að fiski á gömlu Óslandsbryggjunni. Kalli segir að fjörðurinn sé fullur af silungi og það sé nokkurn vegin sama hver netum er hent út, þau fyllast af silungi. Mest er eru það bleikjur og er sjóbirtingurinn um 20% af veiðinni sem hann fær. Aflinn í þessari veiðiferð er það mikill að hann þarf að beinhreinsa og grófflaka til að koma honum strax í ís sem hann hafði í fötum á bryggjunni.

Kalli gaf sér þó góðan tíma til að beinhreinsa úrvals silung sem hann laumaði í poka fyrir viðmælanda og vildi að hann tæki silunginn með sér heim, sem hann gerði með þökkum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica