Júlí
Uppskipun í mjölskipið
Uppskipun í mjölskipið

16.07.2004 Júlí

Búið að bræða 6000 tonn af kolmuna

Í gær var lestað í mjölskip um 1150 tonnum af kolmunna og loðnumjöli hjá Fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey ehf. Björn Traustason verksmiðjustjóri segir að búið sé að bræða 6000 tonn af kolmunna í sumar og hefur hann von um að fá meira af kolmunna ef vel veiðist. Hjá Fiskimjölsverksmiðjunni vinna nú tólf manns við bræðsluna og er unnið á vöktum meðan verið er að bræða. Mjölskipið hélt út höfn um miðnætti síðustu nótt til Neskaupsstaðar og þaðan heldur það til Bremen.

Lóðsinn hélt með mjölskipið út og tók inn enn stærra skip, Olíuskipið Keili sem er í eigu í Olíudreifingar, þeir losuðu hér olíu og héldu aftur út eftir stutt stopp.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica