Járnhesturinn fluttur upp í Almannaskarð
Í morgun um 6 leitið var járngrind sem gengur undir nafninu járnhesturinn sett á flutningabíl og keyrð upp í Almannaskarð í lögreglufylgd. Járnhesturinn sem hefur verið í smíðum út í Óslandi er 8 metra breiður og 12 metra langur og er því ekki æskilegt að flytja hann á annatíma í umferðinni. Tilgangur járnhestsins er að flýta fyrir járnbindingu fyrir vegskálana sitt hvoru megin við jarðgöngin undir Almannaskarð. Geir Þorsteinsson byggingarverktaki sem sér um framkvæmdina á þessum hluta segir að með þessu móti séu þeir helmingi fljótari að forbinda járnið. Hægt er að binda um 12 metra í einu en lengd hvers vegskála eru 162 metrar. Mótin sem notuð eru í smíði vegskálans eru sérsmíðuð og koma frá Austurríki.
Byrjað verður á smíði vegskálans sem er norðanmegin Almannaskarðsins og verður sú vinna kláruð áður en framkvæmdir hefjast við vegskálann sunnanmegin. Reiknað með að steypuvinna við vegskálann hefjist í næsta mánuði.





Skrifa athugasemd