Júlí
Framkvæmdir við Brúará í Biskupstungum
Framkvæmdir við Brúará í Biskupstungum

16.07.2004 Júlí

Búið að steypa brúna yfir Brúará í Biskupstungum

Það er mikið um að vera í brúargerð hjá Hornfirska verktakafyrirtækinu Mikael ehf, brúarvinnuflokkur þeirra hefur farið vítt og breytt um landið, sett upp vinnubúðir og skilað af sér hverju verkinu á fætur öðru. Í gær lauk flokkurinn við að steypa brúna yfir Brúará í Biskupstungum og að sögn Gunnars Gunnlaugssonar eiganda fyrirtækisins verður hleypt umferð á brúna fyrir verslunarmannahelgi. Mikael samdi nýverið við Vegagerðina um byggingu brúar yfir Hörgá á Ólafsfjarðarvegi fyrir 73 milljónir og eru áætlað að brúin verði tilbúin í lok október og mun undirbúningur fyrir byggingu hennar hefst strax í næstu viku.

Mikael ehf mun líka sjá um byggingu brúar yfir Fjarðará í Siglufirði sem samið var um fyrir 18 milljónir og mun hluti brúarvinnuflokksins fara til Siglufjarðar og hefja vinnu við brúna að lokinni vinnu við Brúará sem er áætlað að verði lokið síðar í þessum mánuði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica