Júlí
Áfram Sindri
Áfram Sindri

15.07.2004 Júlí

Glæsilegir sigrar Sindra, Áfram Sindri

Í gær fór 5 flokkur stráka A og B og kepptu þeir við Þrótt Neskaupsstað, Sindramenn fóru létt með að sigra leikinn og unnu báða leikina, A-liðið vann 4-1 og B-liðið vann 8-1, sem sagt glæsilegur sigur. Næsti leikur hjá 5 flokki er á móti Hetti Egilsstöðum og fer leikurinn fram 21. júlí á Sindravöllum. Ef Sindri vinnur bæði í A og B flokki þá eru þeir orðnir Austurlandsmeistarar og komnir í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Forsvarsmenn Sindra eru nú að vinna að því að fá úrslitakeppnina í Íslandsmótinu hingað til Hafnar enda ætla þeir sér að komast alla leið í Íslalandsmeistaraúrslitin. 4 flokkur stelpna fóru til Egilsstaða og kepptu við Hött og gjörsigruðu með 7-0 á heimavelli Hattar og eiga mikla möguleika á að komast í úrslitin. Þær þurfa aðeins að vinna Þrótt Neskaupsstað, en sá leikur fer fram síðar í þessum mánuði á heimavelli Þróttar. Að sögn þjálfara Sindra, Mica Haseta þá er framtíð Sindra í flestum flokkum mjög björt.

Eins og öllum sem fylgjast hafa með Sindrastelpunum þá voru þær Austurlandsmeistarar í fyrra og vonandi halda þær titlinum áfram og komast enn lengra þ.e. vera Íslandsmeistarar í sínum flokki. Af Sindraskvísunum er það að frétta að þær töpuðu sínum fyrsta leik í langan tíma sem var á móti Hetti frá Egilsstöðum en leikurinn fór fram á Seyðisfirði og fór 4-3. Markaskorarar fyrir skvísurnar voru Valdís Ósk, Jóna Benný og Soffía. – Áfram Sindri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica