Afmælis-samgönguhátíðin í Skaftafelli
Um hundrað og fjörutíu manns komu á Samgönguhátíðina í Skaftafelli í gær í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá opnun Skeiðarárbrúar og þar með hringvegarins. Hátíðin byrjaði við hesthúsið, sem er verið að endurbyggja ofan við Bölta, þar sem Ragnar Frank þjóðgarðsvörður bauð gesti velkomna og síðan las Kjartan Ragnarsson leikari frásögu Þórbergs Þórðarsonar “ Vatnadagurinn mikli”. Frá Bölta var haldið inn með brekkunum þar sem vatnadrekinn er til sýnis. Þaðan haldið áfram inn að Morsá og farið á rútunum vegina inneftir varnargörðunum svo langt sem þeir náðu og mun þetta vera í fyrsta sinn sem rútur fara þessa leið. Áður en gengið var inn að nýju göngubrúnni rifjaði Helgi Hallgrímsson fyrrum vegamálastjóri upp sögu framkvæmdanna við Skeiðará fyrir 30 árum. Þar sem rigndi talsvert þarna var gripið til þess ráðs að leggja rútunum þétt saman svo Helgi gæti talað í hátalarakerfi beggja bílanna í einu og allir setið í sínum sætum og hlustað og tókst þetta fyrirkomulag með ágætum.
Síðan var gengið inn að nýrri göngubrú, við Götugil, yfir Morsá þar sem Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra vígði brúna. Þegar brúin hafði verið skoðuð og reynd bauð þjóðgarðsvörður öllum að koma í Hótel Skaftafell og þiggja veitingar og í lokin var myndasýning. Um fimmtíu manns sem þarna voru höfðu unnið við brúargerðina fyrir 30 árum. Til gamans má geta þess að aldur samkomugesta var frá þriggja ára til níutíu og fimm ára.





Skrifa athugasemd