Færeyingar frá Suðurey í heimsókn
Síldarvalsinn á færeysku hljómaði úr Pakkhúsinu í gær og þar voru á ferðinni um 30 félagar úr Lionsklúbbnum í Suðurey sem fóru hringinn og komu hér við. Félagar úr Karlakórnum Jökli tóku á móti Færeyingunum sem voru að endurgjalda heimsókn karlakórsmanna til Færeyja í fyrra vor. Formleg móttaka fór fram í Pakkhúsinu og var þar skipst á gjöfum. Albert Eymundsson bæjarstjóri gaf hópnum m.a. Sögu Hafnar og tók á móti bók um skútuna Jóhönnu sem er samskonar skúta og Færeyska skútan Heimdallur sem fórst hér í innsiglingunni 1941 þegar ís lyfti skútunni upp á Hvanney en mennirnir björguðust allir. Björn Arnarson tók á móti mynd af samskonar skipi og Heimdalli ásamt afriti af skráningarbókinni sem sýndi hvaða áhöfn hélt með Heimdalli í hina örlagaríku ferð til Íslands.
Rifjaðar voru upp skemmtilegar sögur m.a. þegar afabróðir Alberts Eymundssonar, Björn lóðs eins og hann var ávallt kallaður var á “Litla lóðsinum” Dverg fyrir utan Ósinn, en vegna veðurs sem hann hreppti rak hann á haf út og var bjargað af Færeyskri skútu eftir einn og hálfann sólarhring og var hann þá búinn að reka langleiðina til Færeyja. Eftir móttökuna í Pakkhúsinu héldu karlmennirnir í hópnum með Lóðsinum Birni Lóðs sem heitir í höfuðið á afabróðurnum út fyrir Ós til að skoða innsiglinguna og hvar Heimdallur hafði farist, konurnar í hópnum héldu í verslunarkjarnann Miðbæ á meðan.
Eftir ferðina út í Ós buðu Karlakórsmenn Færeyingunum á Jöklasafnið og tók þar á móti þeim Sverrir Scheving sem sjálfur er hálfur Færeyingur og mikill Lionsmaður. Hópurinn hélt frá Höfn áleiðis til Seyðisfjarðar með viðkomu á Djúpavogi. Þeir halda síðan til Færeyja með Norrænu á morgun fimmtudag eftir vikuferð um Ísland í sól og sumaryl að undanskilinni rigningunni sem þeir fengu hér á Höfn.





Skrifa athugasemd