Ávallt fjórir á bakvakt yfir sumartímann.
Með tilkomu jarðgangna undir Almannaskarð stendur til að slökkviliðsmenn fái sérþjálfun vegna bruna eða slysa í jarðgöngum og er stefnt á að halda námskeið vegna þess á næstunni. Yfir sumartímann eru ávallt fjórir menn á bakvakt hjá slökkviliðinu til að tryggja lámarks manskap á staðnum. Það eru ekki launin sem fá menn til að starfa í slökkviliði heldur sú staðreynd að menn vilja leggja sitt á vogarskálina til að tryggja sem best björgun fólks, fénaðar og eigna ef eldur verður laus. Á þessu ári hafa verið tvö útköll vegna elds en þess má geta að slökkviliðið er einnig kallað út verði umferðarslysa í sveitarfélaginu.
Í Slökkviliði Hornafjarðar eru 22 menn og hafa þeir yfir að ráða einum tækjabíl og tveimur tankbílum með 10 og 12.000 lítra vatnsbyrgðum. Annar bíllinn er auk þess með 4000 lítra dælu tengdri aflvél bílsins og 1200 lítra lausri mótordælu. Tækjabíll slökkviliðsins er vel búinn tækjum. Í honum eru meðal annars björgunarklippur sem eins og kunnugt er eru notaðar til þess að ná fólki úr bílum eftir útafkeyrslu eða önnur umferðarslys. Bíllinn er einnig með áfastri 2000 lítra dælu tengdri aflvél bílsins. Margskonar annar búnaður til björgunar og slökkvistarfa er einnig í bílnum.
Gamall Bedford slökkvibíll sem enn er nothæfur er einnig í bílaflota slökkviliðsins. Björgunarsveitin Kári í Öræfum annast slökkvistörf þar í sveit ásamt Slökkviliði Hornafjarðar og eru þeir með einn tankbíl með 15.000 lítra vatnstank og lausri 1200 lítra mótordrifinni dælu.





Skrifa athugasemd