Júlí
G. Ágúst Pétursson hjá Frumkvöðlafræðslunni
G. Ágúst Pétursson hjá Frumkvöðlafræðslunni

13.07.2004 Fréttir fruma

Lífleg starfsemi Frumkvöðlafræðslunnar

Frumkvöðlafræðslan sem er til húsa í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum mun standa fyrir námskeiði fyrir kennara á framhaldsskólastigi í frumkvöðlafræðum og hafa þegar skráð sig kennarar frá þeim skólum sem verða með fagið á námsskrá á haustönn. Vegna þessa eru fræðslan að þýða og staðfæra kennslubók í faginu og er nú leitað eftir fjármagni hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum vegna útgáfu kennslubókarinnar. Frumkvöðlafræðslan mun standa fyrir námskeiðum fyrir frumkvöðla vítt og breytt um landið m.a. í Vestmannaeyjum og á Húsavík. Einnig mun Frumkvöðlafræðslan fara í samstarf við bændasamtökin sem felur í sér að vera með ný námskeið um frumkvöðlafræði fyrir bændur í haust. Byrjað verður í Dölum vestur og á Suð-Austurlandi.

Í vor fóru 5 nemendur í frumkvöðlafræðum við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu í kynnisferð til Reykjavíkur og var ferðin styrkt af Landsbanka Íslands Hornafirði, Sparisjóð Hornafjarðar og nágrennis, Skinney-Þinganes og Vélsmiðjunni Foss. Ágúst Pétursson stjórnarformaður Frumkvöðlafræðslunnar tók á móti hópnum á Reykjavíkurflugvelli og var haldið beint uppí Öskju í nýja jarðfræðihúsið þar sem hópurinn hitti Dr. Guðmundur Hrafn Guðmundsson, Ph.D., prófessor í frumulíffræði og Dr. Örn Daníel Jónsson, prófessor í frumkvöðlafræðum. Guðmundur hélt stutta tölu um erfðatæknina og möguleika hennar í framtíðinni. Síðan var farin skoðunarferð um húsið og fengu nemendur að skoða fjöldann allan af tækjum og tólum sem notuð eru við vísindarannsóknir. Stuttur stans vara gerður í Odda, húsnæði félagsvísinda og viðskiptafræði. Eftir hádegi var haldið í listasmiðjuna Klink og Bank þar sem Landsbankinn hefur skapað aðstöðu fyrir fjölbreytta listastarfsemi. Þar voru listamenn að störfum hvert sem litið var en alls hafa þar 150 listamenn aðstöðu. Eftir að hafa þrammað um húsakynni listasmiðjunnar var haldið í Háskólann í Reykjavík. Þar tók á móti þeim Bjarney Sonja Ólafsdóttir sem sýndi þeim húsakynni skólans og flutti stuttan fyrirlestur um skólann og möguleikana sem þar bjóðast. Eftir ávaxtasafa og smá hvíld í kaffistofunni var haldið í höfuðstöðvar Norðurljósa. Þar mætti hópnum Þorgeir Ástvaldsson, þáttagerðamaður á Bylgjunni og var hópurinn leiddur um húsakynni stöðvarinnar og eftir þá kynningu stormaði hópurinn niður á útvarpssvið Norðurljósa, skoðaði helstu útvarpsstöðvarnar og ræddi við þáttastjórnendur. Að lokum kallaði Þorgeir hópinn inn á Bylgjuna og tók viðtal í beinni útsendingu. Að því næst hélt hópurinn út á flugvöll og náðist fimm vélin til Hafnar í tíma

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica