Verslun á traustum fótum í 58 ár
Ein er sú verslun á Höfn sem staðið hefur traustum fótum allt frá stofnun hennar fyrir 58 árum er Verslun Steingríms á Skólabrú 2. Steingrímur Sigurðsson stofnaði verslunina árið 1946 og er hún því elsta núverandi kaupmannsverslunin sem verið hefur á Höfn. Á þeim árum hefur ekki verið auðvelt að ná í vörur því skömmtun var á flestu og samgöngur strjálar. Steingrímur byrjaði að versla með nýlenduvörur, eins og það var kallað þ.e. pakkavöru, matvæli, sælgæti og gos. Það var oft þröngt í "Steinabúð” í frímínútum Hafnarskóla því stutt var að hlaupa til að ná sér í eitthvað gott eða bara fara þangað af því að það voru frímínútur. Steingrímur rak verslunina meðan honum entist heilsa og aldur til og um 1994 tók Bjarni Snorrason dóttursonur hans við rekstrinum. Bjarni segir að verslunin sjálf sé óbreytt en vöruúrvalið orðið allt annað, nú er það fatnaður, gjafavörur og skartgripir sem þar eru á boðstólum.
Þær eru ófáar verslanirnar sem sprottið hafa upp á Höfn á þessum árum og sumar staðið stutt en Bjarni er sáttur við kaupmannsstarfið og ætlar að halda því ótrauður áfram.





Skrifa athugasemd