Júlí
Framámenn í Skaftafelli (úr myndasafni)
Framámenn í Skaftafelli (úr myndasafni)

13.07.2004 Júlí

Samgönguhátíð 14.júlí í Skaftafelli.

Miðvikudaginn 14. júlí n.k. verður þess minnst í Skaftafelli að liðin eru 30 ár frá því að Skeiðarárbrú var tekin í notkun. Samgönguhátíðin hefst kl.14 með því að safnast verður saman við þjónustumiðstöðina þar sem rúta bíður þess að fara með fólkið upp að Bölta en lagt verður á stað þangað stuttu síðar. Þegar komið er að Bölta verður farið að gamla hesthúsinu, sem er nýuppgert, þar verður opnun hátíðarinnar og síðan er upplestur Kjartans Ragnarssonar leikara “Vatnadagurinn mikli”. Kl.15 verður ekið að Vatnadrekanum, hlítt þar á ljúfa harmonikkutóna og drekinn skoðaður undir leiðsögn Péturs Kristjánssonar.

Kl.15.15 verður gengið upp garðinn ofan við Vatnadrekann þar sem Helgi Hallgrímsson kynnir hönnun mannvirkja og tengsl heimamanna við þau. Því næst er haldið að nýrri göngubrú sem gerð hefur verið yfir Morsá og þar vígir Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra nýju brúna. Að vígslu lokinni um kl 16.15 verður farið til baka að rútunni og ekið í Hótel Skaftafell í Freysnesi, þar verður kaffi, myndasýning og ef einhver vill ávarpa viðstadda þá er orðið laust. Dagskrárlok hátíðarinnar er kl.17.15.

Ragnar Frank þjóðgarðsvörður í Skaftafelli vonast eftir að sem flestir komi í þjóðgarðinn á miðvikudaginn og njóti þessara merku tímamóta og vill hann sérstaklega hvetja þá sem komnir eru á efri árin og muna tímana tvenna í samgöngumálum í sýslunni að koma. Ragnar vill einnig láta koma fram að sú gönguleið sem þarna er farin er öllum auðveld og er á jafnsléttu þannig að allir rólfærir komast hana. Rútuferð verður í Skaftafell og verður farið frá Höfn um hádegi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica