Júlí
Öldungarnir nokkrum árum yngri en í dag (mynd:Hulda Laxdal)
Öldungarnir nokkrum árum yngri en í dag (mynd:Hulda Laxdal)

12.07.2004 Júlí

USÚ á landsmóti

Glæsilegu landsmóti Ungmennafélags Íslands er nýlokið á Sauðárkróki. Það var ekki fjölmennur hópur sem fór héðan en keppt var í tveimur greinum fyrir hönd USÚ. Eitt karlaliðlið keppti í bridds og konulið í blaki. Ekki náðu briddsspilarar í stig en konurnar í blakliðinu enduðu í 10 sæti af 12 liðum og fengu fyrir það 10 stig. Ungmennasambandið Úlfljótur endaði því í liðakeppninni í 22. – 24. sæti ásamt Ungmennasambandi Norður-Þingeyinga og Ungmennafélagi Vesturhlíðar sem einnig voru með 10 stig. Í blakliðinu voru sumir keppendur að keppa á sínu fyrsta landsmóti en aðrir að rifja upp gömul kynni af þessum frábæru mótum eftir 15 – 20 ára fjarveru. Þátttaka í landsmótum UMFÍ er ógleymanleg reynsla öllum þeim sem það upplifa og nú gefst kjörið tækifæri til að leyfa unga fólkinu okkar að kynnast þessum einstöku mótum.

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Öll aðstaða til mótahalds og útilegu á Sauðárkróki er í sérflokki og auk fjölbreytilegrar íþróttakeppni verður boðið upp á margháttaða skemmtidagskrá í tengslum við mótið. Landsmótsfarar USÚ vilja hvetja foreldra til að fjölmenna með börnum sínum undir merkjum USÚ á unglingalandsmót og eiga þar ógleymanlega fjölskylduhelgi við keppni, leik og samveru.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica