Júlí
Félag ungra sjálfstæðismanna á Höfn
Félag ungra sjálfstæðismanna á Höfn

12.07.2004 Júlí

Sumarmót ungra sjálfstæðismanna á Höfn

Fréttatilkynning

Ungir sjálfstæðismenn á Höfn bjóða ungliðum úr kjördæminu til sín í heimsókn um næstu helgi. Mikill metnaður hefur verið lagður í dagskrána og eru allir ungir sjálfstæðismenn á Höfn hvattir til að taka þátt í henni. Skráning fer fram hjá Páli Heimissyni, með því að senda póst á netfangið: pallhe@hi.is Föstudaginn 16. júlí ætla allir að hittast um klukkan 22.30 við Jökulsárlón þar sem farið verður í kvöldsiglingu. Eftir siglinguna verður hungruðum boðið upp á grillaðar pylsur. Eftir að fólk hefur matast verður farið út á Höfn þar sem þeir djammþyrstu geta kynnt sér bæjarlífið.

Laugardaginn 17. júlí taka allir daginn snemma og mæta hressir og kátir í sjálfstæðissund í sundlaug Hafnar klukkan 10.00. Eftir sundið verður haldið upp á Hótel Höfn þar sem boðið verður upp á súpu og brauð en svo hefst málefnastarf. Fólki verður skipt í hópa og rætt verður um unga sjálfstæðismenn í kjördæminu, hvernig við getum eflt félögin og styrkt tengslin innbyrðis. Um klukkan 15.00 verður farið í siglingu með Birni lóðs. Hápunktur kvöldsins er svo þegar allir koma saman til kvöldverðar ásamt góðum gestum. Kvöldverðurinn verður þrírétta og meðan á matnum stendur er áformað að ræða þau málefni sem eru efst á baugi. Eftir matinn ætla svo allir að fjölmenna á Kaffi Hornið þar sem hljómsveitin Parket sér um fjörið. Sunnudaginn 18. júlí munu svo gestirnir fara heim.

Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu með okkur. Allir ungir sjálfstæðismenn eru hvattir til að koma á Kaffi Hornið á morgun, þriðjudag, klukkan 21.00 en þá ætla ungir sjálfstæðismenn á Höfn að hittast og fara yfir skipulagningu og dagskrá helgarinnar.

Ungir sjálfstæðismenn á Höfn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica