Kvikmynd frá Lóninu á Heimssýninguna í Japan
Um helgina vor staddir á Jökulsárlóni starfsmenn frá Japönsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í að taka kvikmyndir sem eru í mjög sérstökum stærðum. Kvikmyndin sem tekin var verður sýnd á heimssýningunni í Japan á næsta ári og verður hún á tjaldi sem er 50 metrar á breidd og 10 metrar á hæð. Myndatakan fór fram inn við jökul sem er um 5 km. frá Jökulsárbrúnni. Kvikmyndatökumenn fengu bestu hugsanlegu aðstæður, frábært veður og jökullinn skartaði sínu fegursta og voru þeir mjög ánægðir með aðstæður og þá þjónustu sem þeir fengu á lóninu. Kvikmyndatökunni lauk um helgina og þegar þeir yfirgáfu Jökulsárlónið þá leystu þeir starfsmenn lónsins út með gjöfum.
Kvikmyndir sem þessar sem teknar eru af náttúruperlum okkar og síðan sýndar á alþjóðavísu eru góð auglýsing og mikils virði fyrir ferðaþjónusta.





Skrifa athugasemd