Júlí
Frá leik Sindra og Aftureldingar
Frá leik Sindra og Aftureldingar

12.07.2004 Júlí

Sindramenn áttu leikinn í upphafi en svo ekki meir.

Sindramenn mættu Aftureldingu í gær á Sindravöllum í öðrum flokki karla, í upphafi áttu Sindramenn leikinn og voru á tímabili tveimur fleiri eftir að tveir leikmenn Aftureldingar höfðu verið reknir af velli, þá skoruðu Gísli og Ingi Jón tvö mörk með stuttu millibili og var þá staðan 2-1. Þegar leikurinn var að verða hálfnaður var eins og Aftureldingarmenn fengu aukinn kraft og sýndu flotta takta og náðu að skora tvö mörk í skyndisóknum og komust yfir í 3-2. Þá var byrjaði að hitna enn meir í leiknum, dómari rak tvo menn Sindra út af vellinum, annar fékk gult spjald, en hinn var rekinn útaf fyrir mjög gróft brot. Þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir af leiknum náði Afturelding að komast í gegnum vörnina hjá Sindramönnum sem var mjög slök í þessum leik og skoruðu 4 markið og tryggðu sér sigur í leiknum.

Dómari leiksins Miralem Haseta var ekki ánægður með framkomu leikmanna, bæði Aftureldingar og Sindra og hugsanlega geta einhverjir leikmenn fengið langt leikbann fyrir mjög gróf brot í þessum leik. Miralem segir að það sé ljóst að leikmenn þurfa að taka sig saman í andlitinu og gera á þessu bragabót.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica