Fis lentu á Hornafjarðarflugvelli
Það hefur ekki farið fram hjá neinum á Höfn sem hefur verið úti að njóta veðurblíðunnar flugumferðin yfir Höfn, þar voru á ferðinni Fisin sem von var á um helgina. Fisin sem voru 10 alls með einum til tveimur um borð lentu á Hornafjarðarflugvelli um hádegisbilið hver af annarri. Ferðalangarnir komu hingað eftir að hafa haft næturdvöl í Freysnesi í nótt og lögðu þeir þaðan af stað í morgun til Hafnar. Tilgangur ferðarinnar er einnig að skoða þær náttúruperlur sem verða á leið þeirra og hafði hluti af hópnum flogið að Hvannadalshnjúk á leiðinni. Fisin fóru frá Hornafjarðarflugvelli um 14:30 og var flogið yfir Almannaskarð og niður Skarðsdalinn.
Þaðan var ætlunin að fljúga með ströndinni til Djúpavogs, til Borgarfjarðareystri, Norðfjarðar og áætlað að lenda á Egilsstöðum, en breyta þurfti áætlunnin þagar komið var í Lónið og var ákveðið var að fljúga yfir Lónsöræfin og til Egilsstaða.





Skrifa athugasemd