Heyskapur og pollamót
Heyskapurinn hefur gengið mjög vel og eru Nesjamenn að verða búnir með fyrri sláttinn og Öræfingar vel komir af stað. Þar sem veður hefur verið með eindæmum hagstætt þá var hægt að slá það snemma, þurft lítinn áburð og er hey með besta móti segir Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður búnaðarsambands A-Skaft sem staddur var á Pollamóti á Akranesi. Frá heyskapnum yfir í Pollamótið, á Akranesi eru nú Írskir dagar og verða þar veitt sérstök verðlaun fyrir rauðhærðasta manninn og þar sem Grétar á þrjá slíka ætlar hann að velja þann rauðhærðasta og setja hann í keppnina “ Þetta er eins og á landbúnaðarsýningu” segir Grétar og hlær.
Alls eru 19 Sindrastrákar í 7. flokk (7 og 8 ára) sem eru á pollamótinu á Akranesi í blíðskaparveðri ásamt foreldrum og verða þeir þar yfir helgina.





Skrifa athugasemd