Sumar-sveita-kaffi á Hólabrekku
Á sunnudögum í sumar og í fyrsta skipti sunnudaginn 11.júlí mun sambýlisfólkið í Hólabrekku bjóða upp á sumarsveitakaffi að gömlum sveitasið og verður þar að finna flatbrauð með heimareyktu hangikjöti, jóla- og pönnukökur, kanilsnúða og að sjálfsögðu rjómavöfflur fyrir þá sem ekki vilja fara í hlaðborðið svo eitthvað sé nefnt. Sambýlisfólkið hefur einnig unnið kertakrukkur og dósir sem þarna verða líka til sölu ásamt ýmsu fleiru. Ágóði af þessu mun renna í sjóð sem notaður verður til ferðar sambýlisfólksins til Þýskalands 23. ágúst þar sem hópurinn mun dvelja í viku og skoða sig um í nágrenni Wurtzburg sem er heimaborg Mike Burger sem hefur verið starfsmaður í Hólabrekku síðastliðin 3 ár. Einnig er tilgangur með sveitakaffinu að fá fólk til að koma í sveitina og hitta fólkið sem eru líka sýna sig og sjá aðra eins og sagt er.
Holt er gamalt félagsheimili þar sem fólk kom saman hér áður fyrr og með þessu er um leið verið að viðhalda hlutverki Holts sem félagsheimilis. Á sambýlinu búa sex manns og eru starfsmenn þar 9 þegar allir eru talir. Anna Egilsdóttir er forstöðumaður á sambýlinu og segir hún að íbúarnir þar hafa margt fyrir stafni, þeir séu m.a. í sumar að rækta ýmsar tegundir af grænmeti og er reiknað er með góðri uppskeru af káli, gulrótum, kartöflum og rófum enda veður verið yndislegt í sveitinni í sumar.





Skrifa athugasemd