Góður afli hjá smábátum
Það hefur gefið mjög vel hjá smábátum síðustu dagana, hafa þeir verið að koma með eitt og hálft til þrjú tonn eftir hvern róður. Farið er út í morgunsárið og landað að kvöldi og mikið líf á bryggjunni þegar verið er að ganga frá eftir daginn og undirbúa fyrir morgundaginn. Afli bátanna sem veiðst hefur fer bæði til Skinney-Þinganess og til Bestfisks. Veður síðustu daga hefur verið með eindæmum gott á sjónum. Það eru ekki bara bátar héðan sem eru að róa frá Hornafirði, nokkrir hafa komið að austan og gert héðan út, von er á bátum að sunnan sem einnig ætla að sækja héðan.
Bestfiskur hefur nú verið að auglýsa eftir fólki til fiskvinnslustarfa en það eru 10 bátar landa sínum afla þar.





Skrifa athugasemd