Vélknúin fis á Hornafjarðarflugvelli um helgina
Næstu helgi munu félagar í Fisfélagi Reykjavíkur og Fisfélaginu Sléttunni leggja upp í hópflug hringinn í kringum Ísland. Flogið verður meðfram ströndum landsins og með viðkomu á helstu flugvöllum svo við Þjóðgarðinn Skaftafell. Fyrsta stopp félagana verður á Hornafjarðarflugvelli n.k. laugardag og munu þeir hafa næturdvöl í Sveitarfélaginu. Í ferðinni verða einnig skoðaðar helstu perlur landsins og jafnframt verður gerð stutt heimildarmynd um landið og ferðina. “Fisin eru vélknúin og með öllum helstu mælitækjum um borð, það eina sem vantar er þjónustan um borð” sagði Árni Gunnarsson formaður Svifdrekafélags Reykjavíkur þegar Hornafjördur.is ræddi við hann um ferðina.
Reiknað er með að 15 fis fari í ferðina en veður getur haft einhver áhrif á fjöldann. Í hverju fisi eru yfirleitt tveir menn. Reiknað er með að ferðin umhverfis landið taki um 7 daga og er áætlað að lenda aftur í Reykjavík 17. júlí.





Skrifa athugasemd