Júlí
Brúðarbíllinn,  Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Anna Mekkin Reynisdóttir
Brúðarbíllinn, Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Anna Mekkin Reynisdóttir

07.07.2004 Júlí

Kassabílarallið haldið í 7. skipti

Samantekt: Guðbjörg Garðarsdóttir

Kassabílarall Landsbanka Íslands var haldið á Humarhátíð með pomp og prakt að vanda, var þetta í 7. skiptið sem slík keppni er haldin. Bílum fer sífellt fjölgandi og metnaðurinn eykst stöðugt og verk dómara mjög vandasamt. Alls tóku 19 bílar þátt í ár og einnig árið 2003 og er það mikil aukning frá undangengnum árum. Verðlaunum hefur verið fjölgað í kjölfarið. Veitt eru verðlaun fyrir 1.2.3 sæti á tíma og svo vegna flottasta bílsins og síðastliðið 1 ár einnig vegna frumlegasta bílsins. Kassabílarall LÍ er hugmynd Kristínar Gestsdóttur sem kviknaði við undirbúning 100 ára afmælis árið 1997, og hefur verið þróuð áfram af starfsfólki Landsbankans á Höfn og mun halda áfram að þróast á meðan svona góð þátttaka er. Rallið er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Þá er bara að byrja að smíða fyrir komandi rall 2005.

Vinningshafar 2004
1.sæti á tíma 27.13 sek = Kristofer Örvar Ögmundsson og Fjóla Ósk Ögmundsdóttir
2.sæti á tíma 28.01 sek = Þorgils Snorrason og Sunna Björg Gunnarsdóttir
3.sæti á tíma 28.43 sek = Eggert Helgi Þórhallsson og Darri Snær Nökkvason.

Flottasti bílinn. var “Brúðarbíllinn” Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Anna Mekkin Reynisdóttir
Frumlegasti bílinn var “Mótorkaggi með ljósaseríu" Kristján Helgi Garðarsson og Héðinn Mari Garðarsson.

Landsbankinn á Hornafirði vill þakka öllum krökkum sem tekið hafa þátt í rallinu á þessum árum og hvetur þau til að taka þátt í rallinu áfram.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica