Grillað og sungið fyrir hátíðargesti
Á hátíðarsvæðinu um helgina var hægt að fá grillaðan humar og voru grillmeistararnir úr röðum Karlakórsins Jökuls. Þetta er í annað sinn sem kórinn tekur að sér að grilla ofan í hátíðargesti. Í stað þess að grilla bara einu sinni yfir helgina þá var grillað á föstudagskvöldinu, laugardeginum og aftur á laugardagskvöldinu. Kórinn hafði einnig til sölu frosinn humar og nýttu margir sér það að taka með sér poka eða tvo. Humarinn rann ljúflega niður í gesti hátíðarinnar enda voru nokkur góð lög tekin fyrir gestina. Karlakórinn söng við opnun hátíðarinnar á föstudagskvöldinu og mættu kórmenn þar í fyrsta sinn opinberlega í nýjum flíspeysum merktum Karlakórnum Jökli, hver rödd hefur sinn lit og eru þær einnig merktar með nöfnum kórmanna og í hvaða rödd þeir syngja.
Auk þess að mæta á æfingar þá hafa karlakórsmenn verið að syngja opinberlega og má þar nefna söng fyrir hóp bæjarstjóra sem staddi voru hér á bæjarstjóraþingi, kórinn söng samkvæmt venju við minningarreit sjómanna út í Óslandi á sjómannadaginn og nú síðast söng kórinn í Pakkhúsinu fyrir dómsmálaráðherra norðurlanda sem hér voru að þinga í síðasta mánuði.





Skrifa athugasemd