Júlí
Magnús og Valdi, Sindramenn við uppsetninguna á auglýsingaskilti
Magnús og Valdi, Sindramenn við uppsetninguna á auglýsingaskilti

05.07.2004 Júlí

Auglýsingar á vatnstanknum til styrktar Sindra

Gamli vatnstankurinn fer ekki fram hjá neinum sem keyrir hér inn í bæinn því hann er mjög áberandi og því verið mjög ákjósanlegur fyrir auglýsingar. Tekjur af þeim auglýsingum sem voru á tanknum runnu upp í kostnað við uppbyggingu og endurgerð tanksins á sínum tíma og þeir auglýsendur sem þar voru studdu við uppbygginguna ásamt því að auglýsa sig á áberandi stað. Nú er verið að endurnýja auglýngarnar á tanknum og eru nýir auglýsendur að koma í staðinn fyrir þá gömlu. Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem hefur umsjón með tanknum hefur ákveðið að styrkja Ungmennafélagið Sindra með því að láta hluta þeirra tekna sem koma inn vegna auglýsinga renna til félagsins.

Vatnstankurinn var byggður árið 1949 og eftir að tankurinn var endurgerður 1999 eftir gagngera endurbyggingu á vegum samtakanna "Verndum vatnstankinn"

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica