Björn Arnarson heimsmeistari
Það var mikill spenna sem ríkti á heimsmeistaramótinu í Hornafjarðarmanna sem haldið var í Íþróttahúsinu um helgina. Alls voru það 135 sem spiluðu á 45 borðum. ?Það er stór hluti spilara sem kemur gagngert hingað til Hafnar til að taka þátt í heimsmeistaramótinu ár eftir ár? segir Albert Eymundsson mótsstjóri og frumkvöðull Hornafjarðarmanna. Spiluð var undankeppni sem tók einn og hálfan tíma og yfirleitt nást 6 umferðir í henni en að þessu sinni voru það 5 umferðir. Úr undankeppninni komast 27 í úrslit á 9 borðum og ríkti mikil spenna þar til úrslitin voru ljós, fyrrverandi heimsmeistarar voru meðal þeirra sem komust í úrslitin og duttu út í lokin.
Björn Arnarson fuglaáhugamaður og starfsmaður Menningarmiðstöðvar hlaut heimsmeistaratitilinn í ár, í öðru sæti var Valdís Harðardóttir og í því þriðja Svava Gunnarsdóttir.





Skrifa athugasemd