Júlí
Framkvæmdir við Krosseyjarbryggju
Framkvæmdir við Krosseyjarbryggju

05.07.2004 Júlí

Krosseyjarbryggja fær nýja klæðningu

Byrjað var á framkvæmdum við þilið sem setja á niður við Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn í gær. Krosseyjar bryggja er samtals 185 metrar og verður allt gamla þilið endurnýjað. Verktaki við framkvæmdirnar er Ísar ehf sem er úr Hafnarfirði, fyrirtækið sá m.a. um að koma samskonar þili í Kópavogshöfn. Þessa stundina er verið að borga í klöpp sem þarf að sprengja burt þar sem dýpkað verður og samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Guðjónssyni verkstjóra þá reikna þeir með að það verði hægt að sprengja klöppina í dag. Sól og blíða er á Hornafirði og er lífið við höfnina að komast í sinn rétta farveg eftir hátíðarhöld helgarinnar.

Reiknað er með að framkvæmdum við þilið ljúki um miðjan september á þessu ári. Á morgun þriðjudag verða opnuð tilboð vegna innsiglingarrennu á grynnslunum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica