Júlí
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun
Sævar Kristinn og Ari Þorsteinsson á Markaðstorginu í Hornabæ (úr myndasafni)

02.07.2004 Júlí

Aldrei verið eins stór markaður

Hornabæjar-markaðurinn verður opinn í dag og morgun og þar kennir margra fleiri grasa en verið hefur frá upphafi markaðarins. Það er alveg brjálað að gera sagði Lísa Þorsteins, þegar hún var spurð frétta af markaðsmálum. Það hefur aldrei verið eins mikið um að vera hér hjá okkur í sambandi við markaðinn eins og núna og það er fullt af nýju sem ekki hefur verið áður og nýir söluaðilar segir Lísa. Handverkskonur frá Stöðvarfirði verða t.d.með úrval af hannyrðavörum á góðu verði, töskur, íslenskt jurtakrem og að ógleymdum Stöðvarfjarðar-harðfiskinum,sem er einn sá besti. Fyrsta kartöfluuppskera ársins verður þar til sölu.

Þarna verður humar, reyktur silungur og ótal margt fleira. Í ,,dánarbúinu” hennar Boggu gefur að líta gull, silfur, eir, kopar og kristal.
Kaffisalan er í höndum Frú Maríu í Nesjasöluskála og hún verður einnig með pizzur og fleira góðgæti. Eitt er víst, það verður líf og fjör í Hornabæ markaðsdagana á Humarhátíðinni

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica