Árlega fjölskyldu-skógargangan á Suðurlandi
Á morgun laugardaginn 3. júlí verður árleg fjölskyldu-skógarganga Félags skógarbænda á Suðurlandi.og að þessu sinni verður farið í skógræktina í Prestbakkakoti. Þátttakendur mæta í Prestbakkakoti hjá Sólveigu Pálsdóttur og Jóni Þorbergssyni. Þaðan verður lagt af stað kl.16.00 og gengið í skógræktina og hún skoðuð, en þangað er um einn eða einn og hálf tíma gangur. Skógræktin sem þarna verður skoðuð er 10.ára. Að göngu lokinni verður sameiginlegt grill og hver kemur með sinn mat á grillið. Heitt kaffi verður á könnunni og drykkir fyrir börnin. Það eru allir velkomnir í skógargönguna segir Agnes Geirdal hjá Suðurlandsskógum. og svona til upplýsingar fyrir þá sem ekki vita, þá er Prestbakkakot í Vestur- Skaftafellssýslu rétt austan við Kirkjubæjarklaustur.
Á svæði Suðurlandsskóga sem nær frá Lóni í Austur-Skaftafellssýslu til Keflavíkur eru um 180 jarðir sem eru komnar með samninga og áætlanir vegna skógræktar og skjólbeltaræktunar í Suðurlandsskógum. Þar af eru rúmlega 100 jarðir sem eru eingöngu í skógrækt og að auki eru 40 jarðir sem eru í vinnslu. Þetta er að verða nokkuð glæsilegur hópur sem er í skógrækt.





Skrifa athugasemd