Júlí
Öryggisborði við Ludvig Andersen
Öryggisborði við Ludvig Andersen

01.07.2004 Júlí

Öryggiseftirlit á hafnarsvæðinu

Frá og með deginum í dag 1. júlí tóku gildi reglur um siglingavernd vegna skipa sem koma að utan eða sigla á erlendar hafnir. Þeir sem hafa farið um hafnarsvæðið hér á Höfn hafa tekið eftir því að búið er að strengja borða sem girða af svæðið við erlendu skipin sem þar eru. Starfsmenn Hornafjarðarhafnar þurfa nú að fylgja eftir hafnarvermd samkvæmt Alþjóða signingarmálastofnunni og gengur verndin út á það að takmarka aðgang um að skipunum fyrir óviðkomandi og um leið hafa eftirlit með því að þeir sem fara um borð eigi þangað erindi. Þetta er gert með því að afmarka svæðið með girðingum eða borðum. Þeir aðilar sem þurfa að vinna í kringum skipin við t.d. uppskipun þurfa að fá sérstakan passa svo að áhafnarmiðlimur skipsins sjái að þarna er á ferðinni aðili sem hefur til þess leyfi.

Til stendur að Hornafjarðarhöfn verði endanlega tekin út á næstu dögum af Siglingastofnun Íslands sem er ábyrg fyrir innleiðingu siglingarvermdar og eftir úttektina þá er Hornafjarðarhöfn endanlega samþykktir hjá Alþjóða siglingarmálastofnunni. Að sögn Vignis Júlíussonar hjá Hornafjarðarhöfn þá hefur þetta gengið mjög vel fyrir sig í dag en það sé ljóst að það þurfi alltaf einhvern aðlögunartíma sér í lagi fyrir þá sem eru vanir að taka rúntinn og skoða skipin.
Tvö erlend skip eru nú í Hornafjarðarhöfn annað Lundvig Andersen sem að sækja saltfisk frá Skinney-Þinganesi og River Aln það er að koma með stálþil sem á að reka niður við Krosseyjarkantinn eins og áður hefur komið hér fram.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica