Króm og Hvítt flytur á Hafnarbraut
Verslunin Króm og Hvítt flytur á næstunni á Hafnarbraut 34 þar sem Orkuverið var til húsa. Við opnum verslunina þar í byrjun ágúst en allt sem tilheyrir pípulögnunum verður áfram á Álaleiru 7 segir Valdís Kjartansdóttir. Vegna flutninganna verður lokað hjá okkur hér um eða upp úr 16.júlí. Það verður ánægjulegt að sjá að aftur verði komin starfsemi í Orkuvers húsið og til þæginda fyrir viðskiptavinina sem sumum finnst langt út á Álaleiru til að versla eða kynna sér hvað er á boðstólum.
Valdís segist þurfa að fá einn starfskraft í viðbót þegar opnað verður á Hafnarbrautinni. Með flutningi Króm og Hvítt á Hafnarbrautina eflist verslunarkjarninn á Miðbæjarsvæðinu.





Skrifa athugasemd