Júlí
Hildur Þórsdóttir og Steinunn Hannesdóttir skálaverðir í Kollumúla
Hildur Þórsdóttir og Steinunn Hannesdóttir skálaverðir í Kollumúla

01.07.2004 Júlí

Ráðnir skálaverðir í Kollumúla

Nú hefur í fyrsta skipti verið ráðinn skálavörður inni í Kollumúla í sumar, Steinunn Hannesdóttir ættuð frá Hólabrekku á Mýrum. Þessu starfi hefur verið sinnt af sjálfboðaliðum eftir því sem hægt hefur verið. Steinunn er ekki ókunnug óbyggðalífinu því hún hefur verið landvörður í friðlandinu norðan Vatnajökuls og í Herðubreiðarlindum tvö sumur og skálavörður í Kverkfjöllum í 10 daga í fyrrasumar. Steinunn segir að starf sitt verði að taka á móti gestum, bjóða þá velkomna,veita þeim aðstoð og upplýsingar, kynna þeim umgengis-og skálareglur og fylgja því eftir.

"Ég ber ábyrgð á hreinlæti í skálanum og umhverfinu og að taka til ef eitthvað er skilið eftir. Ætlast er til að fólk sem gistir skála Ferðafélagsins hirði sjálft eftir sig, en það þarf að fylgja því eftir og mynna fólk á að hafa náttúruverndina að leiðarljósi og hvetja það til góðrar umgengni. Ég er ráðin í þetta starf hjá Ferðafélagi Austur-Skaftfellinga í einn mánuð og hlakka mikið til að takast á við þetta starf og mig hefur lengi langað til að komast á þetta svæð" segir Steinunn.
Steinunn er ekki eina konan sem verður við störf í Kollumúla því Hildur Þórsdóttir verður þar landvörður og er það þriðja sumarið hennar þar við landvörslu.
Ég vinn hjá Umhverfisstofnun, en hún sér um þessi friðlýstu svæði á Íslandi þar á meðal Lónsöræfi sem núna heyra undir yfirráðasvæði Ragnars Frank þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli segir Hildur. Ég verð þarna til að veita upplýsingar og vera til þjónustu reiðubúin. Ég geri mikið af því að stika gönguleiðir fyrir fólk sem kannski les ekki kortið út og inn eða kann ekki að nota áttavita. Ég hef verið að endurstika leiðir sem voru stikaðar fyrir löngu. Hildur sér um viðgerð á þeim manngerðu hlutum sem þarna eru, hún segir að reyndar sé mikið minna af þeim á Lónsöræfum en á öðrum stöðum en það skiptir miklu máli að þeim sé vel við haldið og er skálinn þar með talinn.

Lónsöræfin eða Kollumúli, eins og við köllum svæðið, er skemmtilegasta landsvæðið sem ég hef unnið á segir Hildur en hún hefur verið landvörður í Skaftafelli, Mývatnssveit, Herðubreiðarlindum, Öskju og í Skotlandi í átta sumur. Ég hef gaman af að vera á fjöllum og einkum þar sem ekki er allt fullt af nútíma þægindum svo þessi staður hentar mér mjög vel. Hildur segir að í þeim hópum sem gista í Kollumúla séu flestir íslendingar en útlendingarnir fari meira í dagsferðir, fari með rútunni sem fer inn á Illakamb að morgni og til baka síðdegis. Þetta er öfugt við það sem er á hinum stöðunum og virðist sem svo að þeir viti ekki mikið um Lónsöræfi og þá ómældu fegurð sem þar er að finna. Hildur og Steinunn halda inn í Kollumúla í dag á vit ævintýranna og tilbúnar að taka vel á móti þeim sem “sækja Lónsöræfi heim”

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica