Júlí

Flytjendur

Einstakur hljómburður við Vötn í Lóni - 31.07.2004 Júlí

Það var margt um manninn upp við Vötn í Stafafellsfjöllum seinnipartinn í dag en þar voru haldnir tónleikar í þessari einstöku náttúruperlu. Veðrið var upp á sitt besta, sól á himni og vatnið spegilslétt. Þessir tónleikar eru hluti af skipulagðri útivistar- og tónlistardagskrá sem þeir bræður í Stafafelli í Lóni halda nú um helgina. Þegar búið var að setja upp svið á vatnsbakkanum sem lá út í vatnið, tengja hátalarana og gera allt klárt til tónleikahaldsins tók Bogomil Font hljóðnemann og kynnti tónleikana. Rödd hans ómaði í fjöllunum og þegar byrjað spila mátti heyra að þessi staður hefur alveg einstakan hjómburð. Lesa meira
 
Örn Þór Þorbjörnsson Glófaxamaður

Öddi Þorbjörns skattakóngur Austurlands - 30.07.2004 Júlí

Örn Þór Þorbjörnsson fyrrverandi skipstjóri og núverandi auðkýfingur er skattakóngur Austurlands. Hann greiðir tæpar 32 milljónir í opinber gjöld. Öddi sem er nýkominn úr útreið með Ingimar á Jaðri og Guðmundi Jónssyni þar sem þeir fór vítt og breitt um sveitarfélagið segist vera stoltur af því að fá að greiða svona mikið, hefði þó viðjað vera nær Björgólfi í upphæð. Örn ætlar að dvelja á sumarsetrinu sínu í Stafafellsfjöllum með konunni um Verslunarmannahelgina og taka þátt í hátíðarhöldunum sem þar verða og um leið halda upp á skattakóngstitillinn. Örn segist ætla að skjóta upp mikið af flugeldum á laugardagskvöldinu, miklu meira “flugeldasjó” en hjá Einari Birni á Jökulsárlóninu. Lesa meira
 
Matthew McGuigan matreiðslumeistari og Þorgils Þorgilsson hótelstjóri

Margir leggja leið sína á Hótel Vatnajökul - 30.07.2004 Júlí

Hótel Vatnajökull sem er hluti af Fosshótelkeðjunni hefur nú verið opið síðan í maí og má segja að það sé fullbókað allt sumarið. Að sögn Þorgils Þorgilssonar hótelstjóra þá er mikill straumur af fólk sem leggur leið sína á hótelið, ekki bara til að gista heldur fara á veitingarstaðinn sem er á hótelinu og njóta útsýnisins sem staðurinn bíður upp á, bæði erlendir og íslenskir ferðamenn. Þetta er fyrsta árið sem Þorgils rekur hótelið og er matreiðslumeistarinn hjá honum Matthew McGuigan sem kemur frá Bandaríkjunum. Þorgils segir Matthew matreiðslusnilling sem eldar af mikilli list, bæði Íslenska þjóðarrétti sem erlenda með dyggri aðstoð Sigrúnar Huld sem sér um það að Íslenskir réttir fari fram á Íslenska vegu. Lesa meira
 
Flugvél Nelsons á Mikleyjarálnum

80 ár liðin frá fyrsta fluginu til Íslands - 30.07.2004 Júlí

Þótt reglulegar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Hornafjarðar kæmust ekki á fyrr en eftir 1940 kom það öðru hvoru fyrir að flugvélar hefðu viðkomu á Hornafirði fyrir þann tíma. Eftirminnilegasta heimsóknin af þessu tagi, og reyndar sú fyrsta er á efa lending tveggja flugvéla úr bandaríska flughernum um árið 1924. Þann 6.apríl sama ár hófu fjórar flugvélag sig á loft frá Seattle í Washington-fylki og var förinni heitið umhverfis jörðina. Vélarnar voru af gerðinni Doglas, 12 metra langar með 16 metra vænghaf og vógu rúm fjögur tonn fulllestaðar. Tveir menn voru í hverri flugvél: flugmaður og vélamaður. Í fyrsta áfanga ferðarinnar var flogið til Alaska en þar hlekktist einni vélinni á og heltist hún úr lestinni. Flugvélarnar þrjár sem eftir voru héldu hnattflugi sínu áfram til Kirkwall á Orkneyjum. Þar dvöldu flugmennirnir í nokkra daga áður en haldið var út yfir Atlandshafið til Hornafjarðar. Þegar hér var komið sögu voru liðnir um þrír og hálfur mánuður frá því að flugsveitin lagði af stað frá Seattle og höfðu flugmennirnir upplifað ýmiss konar hremmingar á leiðinni. Lesa meira
 
4-flokkur kvenna Sindra (skvísur).

4-flokkur kvenna Austurlandsmeistarar - 29.07.2004 Júlí

Þessi vika hefur mjög sigursæl í flestum flokkum Sindra, 4 flokkur kvenna hélt á Neskaupsstað þar sem þær sigruðu stelpurnar í Þrótti 2-1og tryggðu sér þar með sigur í Austurlandsriðlinum og fara í úrslit Íslandsmótsins. Þróttarar komust yfir í leiknum en mörk frá Brynju Rut og Hebu Björk tryggðu þeim sigurinn. Stelpurnar eru komnar með 21 stig úr 7 leikjum sem er fullt hús stiga og auk þess 31 mark í plús. Þær eiga enn einn leik eftir gegn Huginn á Seyðisfirði en úrslit þess leikar breytir ekki stöðu þeirra í riðlinum. Úrslitakeppnin fer fram fyrir Norðan, annað hvort á Húsavík eða Akureyri. Í næstu ætla stelpurnar að fara í maraþonhlaup frá Höfn upp í Lón ásamt þjálfara sínum Miralem Haseta og tilgangur hlaupsins að safna áheitum til að standa straum að kostnaði við úrslitakeppni. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 29.07 2004 kl.08:30

Spáð í veðrið um Verslunarmannahelgina - 29.07.2004 Júlí

Nú þegar líður að Verslunarmannahelgi fara menn að spá í veðrið, hvar verður sólin. Margir ferðalangar hafa þegar tekið stefnuna á ákveðna staði þar sem verða hátíðarhöld um helgina burt séð frá því hvaða veðri veðurguðirnir ætla að úthluta, fyrir aðra skiptir veðrið meira máli en staðurinn og elta því sólina og hitann. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá verða hér suðlægar áttir og milt veður, getur orðið vætusamt smá skúrir eða súld og hiti 10-15 stig. Lesa meira
 
Herdís Tryggvadóttir ásamt dóttur sinni í pakkhúsinu

Pakkhúsið vinsæll staður til að líta við - 28.07.2004 Júlí

Góð aðsókn hefur verið í Pakkhúsið á Höfn í sumar en þar er sjóminjasafn og Handraðinn til húsa. Handraðinn er félag handverksfólks í Hornafirði og þar er fjölbreytt úrval muna til sölu svo sem ullar og prjónavörur, smíðagripir, slípaðir steinar og steinstyttur, renndar trévörur, leirvörur, málverk, bútasaumur, hlutir unnir úr flóka og m.fl. Umsjónarkonur í Handraðanum í sumar eru Herdís Tryggvadóttir og Sigrún Ingólfsdóttir og segir Herdís að sala sé meiri í sumar en var í fyrra og það eru Ítalir sem mest kaupa af þeim. Það eru fjölda margir sem koma bara til að skoða bæði safnið og íslenska handavinnu. Pakkhúsið er opið frá kl. 13–18 og 20–22 fram að miðjum ágúst eftir það verður opið frá kl 13–18 til 31.ágúst. Lesa meira
 
Árni Sigurbergsson á TF-ART á Hornafjarðarflugvelli

Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum - 28.07.2004 Júlí

Hornfirðingurinn Árni Sigurbergsson frá Svínafelli í Nesjum starfaði sem flugmaður í 50 ár hjá íslensku flugfélögunum Flugfélagi Íslands og Loftleiðum á áætlunarleiðum félaganna bæði innanlands og í millilandaflugi, hann er nú hættur sökum aldurs. Árni kom fyrir stuttu á sinni einkaflugvél til Hornafjarðar þar sem fréttamaður vefsins hitti hann á flugvellinum. Flugvélina smíðaði Árni sjálfur og tók smíðin sjö ár. “Ég byrjaði á smíðinni árið 1992 og lauk henni 1999 en þá átti eftir að kaupa mótorinn og setja vélina saman og það tók langan tíma líklega alls 3-4000 tíma í heildina" segir Árni. Vélin var smíðuð heima í bílskúrnum mínum og svo þurfti að fá gott pláss til að setja hana saman og fyrsta flugið á henni var 2.júlí 2002. Tegundarheiti flugvélarinnar er Van’s RV-6 lágþekja 2.ja manna, þyngd 1080 pund, hámarksþyngd 1650 pund með eldsneyti, tveim mönnum og farangri. Hún tekur 38 gallon af bensíni og flugþol er 4½ klst. reiknað er með 300 metra flugbraut en getur komist af með 100-200 metra. Lesa meira
 
Vötn í Stafafellsfjöllum (@GBÓ)

Skipulögð dagskrá í Stafafelli um Verslunarmannahelgina - 27.07.2004 Júlí

Um Verslunarmannahelgina verður skipulögð útivistar- og tónlistardagskrá að Stafafelli í Lóni. Fagnað verður opnun glæsilegrar göngubrúar (95m) við Eskifell og opnun gönguleiðar frá Víðidal um Kollumúla og Eskifell til byggðar. Á laugardagsmorgni verður ekið inn að hinni nýbyggðu göngubrú og farið kl. 10:00 í tveggja klukkutíma gönguferð um Eskifell. Á hádegi á laugardag verður lagt af stað í um þriggja tíma göngu um Austurskóga í Smiðjunes. Á sunnudegi verður gengið frá Smiðjunesi kl. 10:00 upp að Melrakkafelli, ofan í Hvannagil þar sem litir eru fjölbreyttir og gilið sérlega fallegt, og þaðan yfir að Vötnum. Eftir hádegi er gengið meðfram Jökulsá í Lóni og endað í kirkjunni á Stafafelli. Harmonikkuleikur og söngur verður á völdum áningarstöðum. Leiðsögumaður verður Gunnlaugur B. Ólafsson. Lesa meira
 
Ragnhildur Magnúsdóttir læknir

Búið að ráða yfirlækni á heilsugæslustöðuna - 27.07.2004 Júlí

Ragnhildur Magnúsdóttir hefur verið ráðin yfirlæknir á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn en hún hefur starfað við stofnunina í sumar. Inga Jóna Halldórsdóttir framkvæmdarstjóri stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins segir útlit fyrir að það takist að manna aðra læknastöðu fljótlega í 5-6 mánuði. Við getum því sagt að að þetta líti bara þokkalega út miðað við hvernig læknamálin hafa verið hjá okkur. Læknaskipti hafa verið ansi ör og það sem af er þessu ári hafa 10 til 12 læknar verið hér tímabundið. Það verður ekki síst gott fyrir íbúa héraðsins og starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar að það komist einhver festa á í þessum málum. Lesa meira
 
Frá tjaldstæðinu á Höfn

Um 90% ökumanna með beltin spennt á hringveginum - 27.07.2004 Júlí

Mikil umferð var í nágrenni Hafnar um helgina og mátti ekki á milli sjá hvort fleiri væru á leið austur eða að koma að austan. Aldrei hefur verið eins mikið af húsbílum, bílum með hjólhýsi eða fellihýsi og verið hefur undanfarið. Lögreglan á Höfn segir að engin umferðaóhöpp hafi orðið um helgina svo vitað sé en hraði í umferðinni sé alltof mikill og hafa margir verið teknir fyrir hraðakstur og í dag tók lögreglan einn á 140 km hraða í nágrenni Hafnar. Lögreglan hefur kannað bílbeltanotkun undanfarna daga og segir að innanbæjar hafi ástandið mikið batnað og notkun aukist. Á hringveginum eru rúm 90 % þeirra sem lögreglan hefur skoðað verið með beltin spennt og eins er með útlendingana. Þar sem mesta umferðarhelgi ársins eru það tilmæli lögreglunnar að ökumenn stilli hraðanum í hóf og sýni tillitssemi og geri sitt til að umferðin megi verða slysalaus. Lesa meira
 
Ragna Tómasdóttir og Erik Pedersen fyrir framan Kaupmannshúsið

Afi minn var Otto Tulinius kaupmaður - 27.07.2004 Júlí

“Saga búsetu á Höfn í Hornafirði hófst með í að Otto Tulinius kaupmaður flutti verslun sína frá Papósi til Hafnar í Hornafirði sumarið 1897” segir í aðfaraorðum í bókinni Saga Hafnar í Hornafirði. Björn Jónsson og Sigríður Margrét Magnúsdóttir sem nú búa í Kaupmannshúsinu sem síðar fékk nafnið Kaupfélagshúsið fengu heimsókn um helgina, þar voru á ferðinni Ragna Tómasdóttir ásamt manni hennar Erik Pedersen, “Afi minn var Ottó Tulinius kaupmaður og okkur langaði að skoða húsið sem hann bjó í og því erum við hingað komin” sagði Ragna. Otto bjó í húsinu frá 1897 til 1901, en þá flutti hann frá Höfn til Akureyrar. Ragna og Erik hafa búið í Danmörku frá 1958 en tala mjög góða íslensku þrátt fyrir að hafa búið öll þessi ár í Danmörku. Lesa meira
 
Björn Ármann Jónsson að kastar kúlunni, Ragnhildur Einarsdóttir þjálfari fylgist með

Frjálsíþróttafólk USÚ gerir það gott á Sumarhátið UÍA - 26.07.2004 Júlí

Nokkur hópur frjálsíþróttafólks hélt á Sumarhátið UÍA sem haldin var á Egilsstöðum um síðustu helgi. Liðsmenn USÚ sópuðu að sér verðlaununum á mótinu og þegar upp var staðið urðu þeir í öðru sæti í stigakeppni mótsins, sem verður að teljast góður árangur. Úlfljótsmenn áttu einnig þrjá bestu árangrana í drengjaflokki, besta afrek vann Fannar Blær Egilsson fyrir 800 m hlaup, annar í stigakeppninni var Bjarni M. Jónsson fyrir árangur sinn í langstökki og þriðji var Björn Ármann Jónsson fyrir árangur í kúluvarpi. Þessi þrír og fleiri íþróttamenn ætla að leggja land undir fót um verslunarmannahelgina og taka þátt í Unglingalandsmóti á Sauðárkróki, óskum við þeim góðs gengis. Lesa meira
 
Heimir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Esso og Gestur Halldórsson innsigla samninginn

Styrktarsamningur undirritaður til þriggja ára - 26.07.2004 Júlí

Knattspyrnudeild Sindra og Esso endurnýjuðu styrktarsamning sem verið hefur í gangi síðustu ár þar sem sérstök áhersla er lögð á að styrkja yngri flokka knattspyrnudeildar Sindra. Undirskriftin fór fram þegar Vestrahorn, nýja Þjónustumiðstöðin var formlega tekin í notkun í síðustu viku. Samningurinn sem er til þriggja ára felur m.a. í sér að Esso kaupir búninga á tvö lið í yngri flokkunum og verður búningurinn með Esso merkinu að framan og Safnkorti að aftan. Einnig fær knattspyrnudeildin fjárhæð í hvert skipti sem einhver verslar og notar safnkort Esso hér á Höfn. Knattspyrnudeildin vill því hvetja styrktaraðila að nota kortið og þá um leið styrkja yngri deildirnar hjá knattspyrnudeildinni. Lesa meira
 
Sviðsmyndin í fjörunni við Almannaskarð

Leikara vantar í vel sett víkingaþorp - 26.07.2004 Júlí

Aðstendur kvikmyndarinnar um Bjólfskviðu leita nú að fimmtán til tuttugu leikurum í aukahlutverk og hafa þeir fengið Leikfélag Hornafjarðar til að aðstoða við leitina. “Okkur vantar hraustlega karlmenn sem eru víkingalegir í útliti, helst vel skeggjaða og ef ekki þá að þeir geti láti sér vaxa skegg fram að upptöku segir Magnús J. Magnússon hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Einnig er leitað að konum sem passa í hlutverk þeirra kvenna sem eru í víkingaþorpinu. Í þorpinu sem á að vera vel sett víkingaþorp eiga að vera jarlar og hraustmenni. Stefnt er á að takan fara fram í byrjun september n.k. Búið er að smíða hluta af leikmyndinni í fjörunni fyrir neðan veginn út á Stokksnes, ekki langt frá Almannaskarði. Lesa meira
 
Flugeldasýning á Jökulsárlóni

Flugeldasýning á Jökulsárlóni - 26.07.2004 Júlí

Eins og undanfarin ár þá verður flugeldasýning á Jökulsárlóni um verslunarmannahelgina. Flugeldasýningin á lóninu var upphaflega aðeins fyrir starfsmenn og hluti af gleðskap sem haldin var í lok sumarvertíðarinnar. Sýningin þótti svo stórkostleg að staðarhaldarinn Einar Björn Einarsson var hvattur til að hafa hana opna og gefa öðrum tækifæri á að vera þar viðstöddum. Á síðasta ári var svo flugeldasýningin auglýst að hún væri öllum opin og mættu þá um 1200 manns sem komu víða að til að upplifa þá stórkostlegu sýn þegar flugeldum var skotið á loft af jöklum út á lóninu og sjá þegar flugeldarnir lýstu upp umhverfið og sköpuðu birtu sem engum líður úr minni sem þar voru. Lesa meira
 
Harmonikkufélagið tók þátt í Samgönguhátíðinni í Öræfum

Ekki skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku - 24.07.2004 Júlí

Félagar úr Harmonikkufélagi Hornafjarðar tóku þátt í Samgönguhátíðinni í Öræfum á dögunum. Þegar samkomugestir komu að vatnadrekanum bárust harmonikkutónarnir á móti hópnum en þar höfðu spilararnir komið sér fyrir í tjaldi á rétt við drekann, sex með harmonikkur, einn trommuleikari og einn með bassa. Harmonikkufélag Hornafjarðar var stofnað 1993 og eru félagar 26. Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson er æfingastjóri og er hann ásamt Zóphoníasi Torfasyni, að sögn Arnar Arnarsonar ( Bróa), höfuð og herðar harmonikkufélagsins. Virkir spilarar þ.e. þeir sem koma fram við hin ýmsu tækifæri og spila, eru um 10 og hinir styðja félagsskapinn með ráð og dáð enda ekkert skilyrði að félagsmenn þurfi að leika á harmonikku eða önnur hljóðfæri bara vera með ánægjunnar vegna. Lesa meira
 
Litbolti er mjög vinsæl íþrótt

Litboltafélagið með grænt ljós - 23.07.2004 Júlí

Litboltafélag Hornafjarðar hefur loksins fengið öll tilskilin leyfi til þess að geta hafið starfsemi og er skráning í félagið þegar hafin. Verið er að undirbúa pöntun á þeim búnaði sem notast í litboltaleiknum en til þess þurfti földan allan af leyfum. Litbolti eða paintball eins og margir þekkja íþróttina er enn ein jaðaríþróttin sem bætist við hérna á Hornafirði. Íþróttin gengur út á skjóta mótspilara með sérútbúnum byssum og kúlum, innihald kúlanna er með öllu umhverfisvænt en þær springa þegar þær lenda á hörðum fleti. Skylda er að vera með grímu fyrir andlitinu til að hylja það fyrir kúlunum því mikill kraftur er í byssunum. Allskyns aukabúnaður er fáanlegur fyrir íþróttina sem gerir hana meira spennandi og skemmtilega. Lesa meira
 
Lúpína

Útbreiðsla lúpínunnar - 23.07.2004 Júlí

Þar sem áður voru gróðurlausir sandar og melar hefur lúpínan náð að breiða sig yfir stór svæði og er hún óneitanlega falleg meðan allt er í blóma. Ekki er lúpínan allstaðar æskileg og t.d. í þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur þurft að takmarka útbreiðslu hennar. Við Bæjarstaðarskóg hefur hún breitt sig út um allt og þar hefur her sjálfboðaliða tekið þátt í að fara á breiðurnar með sláttuorfum og sigðu. Frá náttúruverndarsjónarmiði þurfum við að hindra útbreiðslu lúpínunnar og er búið að slá um tíu hektara svæði við Bæjarstaðarskóg og setja í stórar sátur en svo er eftir að skoða hvað hægt er að gera við þær segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður. Hann segir að gott ráð til að hindra útbreiðslu sé að beita kindum á lúpínuna þegar hún er að byrja að vaxa á vorin. Lesa meira
 
Hús Björgunarsveitar og slökkviliðs í Öræfum

Hús Kára og slökkviliðsins í Öræfum að verða tilbúið - 22.07.2004 Júlí

Verið er að leggja síðustu hönd á smíði húss björgunarsveitarinnar Kára og Slökkviliðsins í Öræfum. Húsið er límtréshús um 300 fermetrar að stærð og er skammt neðan við söluskálanum í Freysnesi.. Björgunarfélagið á hús á Fagurhólsmýri fyrir annan björgunarsveitarbílinn og búnað sveitarinnar en hús vantaði fyrir slökkvibílinn og brimdrekann og verða þeir í nýja húsinu. Bygging hússins er mikið átak fyrir þessi félög en nauðsynin er mikil. Vel hentar að hafa björgunarbíla staðsetta sín hvoru megin við aðal óveðurssvæðið sem er austan við Svínafell og að Fagurhólsmýri. Lesa meira
 
Eyðibýlið á Horni

Sannsöguleg og gerðist í sjóslysinu mikla 1873 við Vestra-Horn - 22.07.2004 Júlí

Eins og fram hefur komið á vefnum verður Óperan Fósturlandsins freyja ( Le Pays), flutt í Hafnarkirkju laugardaginn 24. júlí kl.20.00. Flytjendur eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Gunnar Guðbjörnsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir. Þá mun Elín Pálmadóttir kynna söguna fyrir gestum og verða sögumaður. Íslenskri þýðingu verður varpað upp. Þar sem sögusvið óperunnar er sannsögulegt og sótt í íslenskar heimildir og látin gerast á bænum Horni í Austur Skaftafellssýslu 1873 eftir sjóslysin hörmulegu við Vestra-Horn er gaman að fræðast um meira um hana. Lesa meira
 
Kindur við þjóðveg nr.1 (úr myndasafni)

Slapp með skrámur en bíllinn ónýtur - 22.07.2004 Júlí

Bílvelta varð á þjóðvegi eitt rétt austan við Flatey á Mýrum á þriðjudagskvöldið en ökumaður sem var einn í bílnum slapp með skrámur og eymsli í hálsi. Tildrög slyssins voru þau að kind stökk upp á veginn rétt framan við bílinn og náði ökumaður hennar að forða ákeyrslu en við það lenti bíllinn útaf og valt en kindin slapp. Bifreiðin sem er Mazda árgerð 1992 er ónýt og er tjón unga ökumannsins tilfinnanlegt þar sem bifreiðin var ekki kaskótryggð og hann búinn að safna fyrir bílnum undanfarna mánuði og er að fara í skóla í Reykjavík í haust. Verðmæti bifreiðarinnar var tæplega 190 þúsund og var eigandinn að koma frá Reykjavík þar sem hann keypti bílinn og átti eftir um 20 mínútna akstur heim til sín. Ökumaður var í bílbelti og á 90 km hraða þegar kindin stökk fyrir bílinn. Lesa meira
 
Vestrahornshúsið við Vesturbraut

Glaður dagur í Vestrahorni - 21.07.2004 Júlí

Á fimmtudag verður nýi Essoskálinn í Vestrahornshúsinu við Vesturbraut formlega tekinn í notkun og af því tilefni verður margt gert til gamans, Karlakórinn Jökull tekur lagið, það verða haldnar stuttar ræður, börnunum verða gefnar blöðrur og Emmessís, ýmis tilboð verða í gangi svo sem 6 króna afsláttur á hverjum eldsneytislítra, kveikt verður á grillinu og öllum gefið að smakka. Þetta er önnur ESSO stöðin á stuttum tíma sem er endurbyggð á landsbyggðinni en ESSO stöðin á Blönduósi var opnuð fyrir rúmum mánuði síðan. Lesa meira
 
Reynir Arnórsson umferðarfulltrúi

Ýmislegt má betur fara í umferðinni - 21.07.2004 Júlí

Bílbelta notkun hér á Hornafirði hefur batnað frá því sem var í fyrra, svo er lögreglunni fyrir að þakka því þeir hafa tekið á þessum málum, segir Reynir Arnórsson umferðafulltrúi. Hvað farsímanotkun í akstri varðar, þar sem ekki er notaður handfrjáls búnaður, hefur ástandið stórversnað og er full ástæða fyrir ökumenn að taka það mál til endurskoðunar. Reynir hefur í samstarfi við slysavarnarfólk hér kannað hvar úrbóta er þörf í umferðarmálum og í áframhaldi af því haft samband við viðkomandi aðila um úrbætur. Ég er t.d. margbúinn að benda á að mála þurfi grindverkið við kröppu beygjuna við endann á Ránarslóð vestanmegin, það myndi gera hana mun sýnilegri, síðan eru nokkur gatnamót sem eru slysagildrur, þar þarf að setja spegla, fjarlægja skilti sem birgja sýn og eins vantar stöðvunarskildu merki segir Reynir. Lesa meira
 
Húsbílar á þjónustumiðstöðinni á Höfn

Aukning húsbíla á þjónustumiðstöðinni - 21.07.2004 Júlí

Það hefur færst í aukana að gestir á þjónustumiðstöðinni á Höfn eru á húsbílum enda er sérútbúin aðstaða þar fyrir þá eins og best gerist. Þar geta þeir fengið tengingu við rafmagn og eins er boðið upp á losun á ferðaklósettum sem ekki er mjög algengt á tjaldstæðum. Síðustu nótt voru hér m.a. 40 húsbílar í hópferð. Þetta er fjórða sumarið sem Hugi Einarsson og Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir reka þjónustumiðstöðina og segir Hugi að það sé mikil aukning á húsbílum, tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum. Samanborið við júlímánuð í fyrra þá er heldur meiri gisting á tjaldstæðinu þetta árið. Lesa meira
 
Sigrún Sveinbjörnsdóttir í Heilsa og útlit

Heilsa og útlit flytur í Sporthöllina - 20.07.2004 Júlí

Snyrtistofan Heilsa og útlit á Höfn er að flytja af Bugðuleirunni í Sporthöllina og opnar þar um miðjan ágúst. Sigrún Sveinbjörnsdóttir eigandi stofunnar segir að starfsemin verði að mestu óbreytt því sem verið hefur og hún verður bæði með verslunina og allar þær meðferðir sem boðið hefur verið uppá og vonast hún til að geta bætt fleiru við sig. Ég verð með mína starfsemi þar sem verslunin í Sporthöllinni er og fæ þar vel einangrað herbergi þar sem starfsemi stöðvarinnar truflar ekki á neinn hátt. Ég held að þessi starfsemi mín passi vel við líkamsræktarstarfið og að fleiri komi til með að nýta sér þetta saman. Sigrún er með hand- og fótsnyrtingu fyrir karla og konur, andlitsböð og hreinsanir, varanlegar háreyðingar í andliti og einnig vaxmeðferð til að taka hár af fótleggjum og undan höndum. Lesa meira
 
Félagar í Citroen-braggaklúbbum á Þjónustumiðstöðinni

Citroenbílaeigendur á ferðinni - 20.07.2004 Júlí

Félagar úr hinum ýmsu Citroenkúbbum frá 7 þjóðlöndum höfðu næturdvöl á tjaldstæðinu á Höfn og að sjálfsögðu voru þeir á gömlum og góðum Bragga Citroenbílum að undanskildum bílunum sem fararstjórarnir voru á sem voru Laplander og Unimok. Hópurinn kom til Íslands með Norrænu og er búinn að ferðast um landið og skoða allar helstu náttúruperlur. Fararstjórar ferðarinnar Karen Valdur og Dan Johanson frá Danmörku eru nú að koma til landsins í 10 skipti og segir Karen hópinn mjög ánægðan með ferðina og tók hún sérstaklega fram að vegasamgöngur væru frábærar. Lesa meira
 
Undirbúningur í eldhúsinu fyrir veisluna @kokkur.is

Afhentu sveitarfélaginu afrakstur styrktarveislu - 20.07.2004 Fréttir

Hjónin Jón Sölvi Ólafsson kokkur og Guðbjörg Stefánsdóttir hafa afhent sveitarfélaginu kr. 486.851 sem er ágóði af styrktarveislu sem þau hjón stóðu fyrir í Nesjaskóla sl. vetur. Fjárhæðinni verður ráðstafað samkvæmt ósk aðstandenda veislunnar til kaupa á góðum lyftustól í sundlaug Hafnar sem bæta á aðgengi fatlaðra að sundlauginni. Næsta skref er að velja rétta tækið og koma því fyrir. Lesa meira
 
Perla Sólveig, Heiðdís Anna, Agnar Jökull, Gísli Karl og Björn Arnars með aflann

Góður afli hjá krökkunum í lúruveiðiferð - 20.07.2004 Júlí

Menningarmiðstöð Hornafjarðar bauð krökkum á lúruveiðar í morgun. Farnar voru tvær ferðir með 11 þátttakendur sem voru í öruggri umsjón Björns Arnarsonar og Gísla Karls Ágústssonar. Veðrið var eins og best verður á kosið og góð veiði út af Óslandinu og veiðimennirnir alsælir með ferðina og tvær körfur af lúru sem skipt var á milli þeirra. Lúra er Hornfirskt heiti yfir kola. Lúra var veidd á árum áður í Hornafirði, Skarðsfirði og var mikil búbót að fá nýmeti úr firðinum ásamt silungi og fugli. Lesa meira
 
Mikið um að vera á hafnarbakkanum

Mikið líf á hafnarbakkanum - 20.07.2004 Júlí

Það hefur verið líflegt á bryggjunni á Hornafirði undanfarin kvöld þegar trillurnar eru að landa og útlendir ferðamenn fylgjast vel með því. Fólk kemur mikið á bryggjuna og fylgist með þegar verið er að landa, skoðar í körin og margir vilja vita hvaða fiskar þetta eru segir Sívar Árni Scheving. Trillukarlar á Hornafirði hafa mokfiskað undanfarna daga og hefur afli verið frá tveim tonnum upp í fimm tonn á bát . Sívar sagði að mikið væri af ufsa í aflanum núna og er hann saltaður. Lesa meira
 
Laufey Guðmundsdóttir ferðaþjónustubóndi

Gistiþjónustan í Lækjarhúsum og Króki - 19.07.2004 Júlí

Hjónin Laufey Guðmundsdóttir og Guðlaugur Þorsteinsson í Lækjarhúsum í Suðursveit eru komin með gistiþjónustu í tveim húsum, gamla bænum í Lækjarhúsum og Króki. Við erum bara rétt að byrja í ferðaþjónustunni þessa dagana og það er strax orðið mikið að gera, sagði Laufey sem var á fullu við að taka á móti fólki þegar fréttamann vefsins bar þar að garði en hún gaf sér þó smá stund til að spjalla. Við höfum leigt þessi hús út til vinnuhópa sumrin á undan en ákváðum svo að skella okkur í ferðaþjónustuna og erum bara að ljúka við að fá allar leyfisveitingar og reglugerðir sem til þarf. Við erum með 24 gistirúm og svo er möguleiki á að bæta við í herbergi ef fólk er með börn. Þetta eru bæði uppbúin rúm og svefnpokapláss og það er eldunar aðstaða með öllum tilheyrandi búnaði í báðum húsunum. Það strax mikið búið að bóka þó við höfum ekkert auglýst þetta svo augljóst er að það er mikill skortur á gistiplássi hér á svæðinu yfir sumarið. Hinir ferðaþjónustuaðilarnir benda því fólki sem það getur ekki tekið á móti, á okkur og þetta er mjög góð byrjum og leggst vel í okkur segir Laufey. Lesa meira
 
Hundarnir geta verið svo ljúfir og góðir

Hlýðninámskeið fyrir hunda á Höfn - 19.07.2004 Júlí

Sporthöllin kannar nú áhuga Horfirðinga á hvort þeir vilji koma með hundana sína á námskeið þar sem þeim er kennt að hlýða. Stefnt er að því að halda námskeiðið í september ef næg þátttaka fæst sem eru 20 hundar. Hundaræktarfélag Íslands mun senda þjálfara til að kenna á námskeiðinu. Á slíkum námskeiðum eru m.a. kenndar hlýðniæfingar s.s. að kenna hundinum að setjast og leggjast, að bíða sitjandi, liggjandi og standandi og koma þegar kallað er. Hundinum er einnig kennt að ganga laus við hlið eigandans. Markmið með slíkum æfingunum er að kenna hundinum að einbeita sér að eigendum sínum, að hlusta og hlýða, og eigendum að stjórna hundinum á markvissan hátt og án líkamlegra átaka. Lesa meira
 
Nýja göngubrúin yfir Morsá

Ný göngubrú styttir gönguleiðina í Morsárdal og Bægistaðarskóg. - 18.07.2004 Júlí

Með tilkomu göngubrúar yfir Morsá sem vígð var af Sturlu Böðvarssyni samgöngumálaráðherra á Samgönguhátíðinni í Skaftafelli í vikunni opnast þeim sem ekki geta eða eiga auðvelt með að ganga upp brekkur og hæðir góð og greiðfær leið inn í Morsárdal og Bægistaðarskóg. Þegar farið er yfir göngubrúna styttist gönguleiðin inn í Morsárdal og Bægistaðarskóg úr þrem tímum í tvo miðað við leiðina yfir Skaftafellsheiði og gengið er á sléttlendi sem er í um 100 metra hæð. Leiðin sem farin hefur verið liggur frá Skaftafelli upp að Svartafossi þaðan áfram að Sjónarskeri og yfir Skaftafellsheiði sem er í 300 metra hæð. Þaðan er farið niður Grjótháls sem er brattur, grýttur og erfiður yfirferðar. Ragnar Frank þjóðgarðsvörður segir þá leið vera mörgum erfiða en með því að fara yfir göngubrúna er komin góð gönguleið fyrir alla. Lesa meira
 
Tekist á um boltann í leik Sindra og Þróttar 4.flokk

Sindri sigraði Þrótt frá Reykjavík 1-0 - 17.07.2004 Júlí

Tveir leikir fóru fram á Sindravöllum í dag, meistaraflokkur Sindra mætti Einherja frá Vopnafirði og sigraði Einherji 2-1. Leikurinn var mjög jafn, hvorugt liðanna var að skapa sér tækifæri, óþarfa tími fór hjá báðum liðunum að deila við dómarann fremur en að einbeita sér að því að spila fótbolta. Sindri Ragnarsson skoraði fyrsta mark leiksins og Einherji jafnaði í lok fyrra hálfleiks þegar þeir skoruðu úr hornspyrnu, úrslitamarkið átti Einherji um miðjan seinni hálfleik. Meistaraflokkur Sindra er nú meðal neðstu liðanna í deildinni. Seinni leikurinn byrjaði kl.16 og var það 4 flokkur karla sem spilaði við Þrótt frá Reykjavík, fyrri leikur þeirra þar sem þeir kepptu í Reykjavík fór 4-3 fyrir Þrótt, en að þessu sinni sigruðu Sindramenn 1-0 með glæsilegu marki Hilmars Guðjónssonar. Lesa meira
 
Húnaröstin við bryggju

Húnaröstin seld til niðurrifs - 17.07.2004 Júlí

Húnaröstin SF 550, eitt af skipum Skinneyjar Þinganess, hefur verið seld til niðurrifs og munu nýjir eigendur sigla henni til Danmerkur þar sem skipið fer væntanlega í brotajárn. Aðalsteinn Ingólfsson hjá Skinney Þinganesi segir að verið sé að undirbúa skipið fyrir siglinguna til Danmerkur. Húnaröstin var áður í eigu Borgeyjar og var mikið aflaskip en árið 2001 að lokinni loðnuvertíð var skipinu lagt. Húnaröstin hét fyrst Gissur Hvíti og var smíðaður í Sönderborg í Danmörku árið 1968 fyrir útgerðarmennina Óskar Valdimarsson og Ársæl Guðjónsson á Höfn. Lesa meira
 
Kalli á Móhól gerir að silungnum

Sama hvar netunum er hent út, þau fyllast af silungi - 16.07.2004 Júlí

Af og til sjáum við menn á árabátum út á firði þar sem þeir eru að vitja neta. Einn þeirra sem manna best þekkir fjörðinn og hefur stundað hann frá unga aldri er Karl Sigurðsson (Kalli á Móhól) nú nýlega orðinn sjötugur. Fréttamaður vefsins hitti hann þar sem hann var að gera að fiski á gömlu Óslandsbryggjunni. Kalli segir að fjörðurinn sé fullur af silungi og það sé nokkurn vegin sama hver netum er hent út, þau fyllast af silungi. Mest er eru það bleikjur og er sjóbirtingurinn um 20% af veiðinni sem hann fær. Aflinn í þessari veiðiferð er það mikill að hann þarf að beinhreinsa og grófflaka til að koma honum strax í ís sem hann hafði í fötum á bryggjunni. Lesa meira
 
Uppskipun í mjölskipið

Búið að bræða 6000 tonn af kolmuna - 16.07.2004 Júlí

Í gær var lestað í mjölskip um 1150 tonnum af kolmunna og loðnumjöli hjá Fiskimjölsverksmiðjunni Skeggey ehf. Björn Traustason verksmiðjustjóri segir að búið sé að bræða 6000 tonn af kolmunna í sumar og hefur hann von um að fá meira af kolmunna ef vel veiðist. Hjá Fiskimjölsverksmiðjunni vinna nú tólf manns við bræðsluna og er unnið á vöktum meðan verið er að bræða. Mjölskipið hélt út höfn um miðnætti síðustu nótt til Neskaupsstaðar og þaðan heldur það til Bremen. Lesa meira
 
Járnhestuinn á leiðinnu upp í Almannaskarð

Járnhesturinn fluttur upp í Almannaskarð - 16.07.2004 Júlí

Í morgun um 6 leitið var járngrind sem gengur undir nafninu járnhesturinn sett á flutningarbíl og keyrð upp í Almannaskarð í lögreglufylgd. Járnhesturinn sem hefur verið í smíðum út í Óslandi er 8 metra breiður og 12 metra langur og er því ekki æskilegt að flytja hann á annatíma í umferðinni. Tilgangur járnhestsins er að flýta fyrir járnbindingu fyrir vegskálana sitt hvoru megin við jarðgöngin undir Almannaskarð. Geir Þorsteinsson byggingarverktaki sem sér um framkvæmdina á þessum hluta segir að með þessu móti séu þeir helmingi fljótari að forbinda járnið. Hægt er að binda um 12 metra í einu en lengd hvers vegskála eru 162 metrar. Mótin sem notuð eru í smíði vegskálans eru sérsmíðuð og koma frá Austurríki. Lesa meira
 
Framkvæmdir við Brúará í Biskupstungum

Búið að steypa brúna yfir Brúará í Biskupstungum - 16.07.2004 Júlí

Það er mikið um að vera í brúargerð hjá Hornfirska verktakafyrirtækinu Mikael ehf, brúarvinnuflokkur þeirra hefur farið vítt og breytt um landið, sett upp vinnubúðir og skilað af sér hverju verkinu á fætur öðru. Í gær lauk flokkurinn við að steypa brúna yfir Brúará í Biskupstungum og að sögn Gunnars Gunnlaugssonar eiganda fyrirtækisins verður hleypt umferð á brúna fyrir verslunarmannahelgi. Mikael samdi nýverið við Vegagerðina um byggingu brúar yfir Hörgá á Ólafsfjarðarvegi fyrir 73 milljónir og eru áætlað að brúin verði tilbúin í lok október og mun undirbúningur fyrir byggingu hennar hefst strax í næstu viku. Lesa meira
 
Áfram Sindri

Glæsilegir sigrar Sindra, Áfram Sindri - 15.07.2004 Júlí

Í gær fór 5 flokkur stráka A og B og kepptu þeir við Þrótt Neskaupsstað, Sindramenn fóru létt með að sigra leikinn og unnu báða leikina, A-liðið vann 4-1 og B-liðið vann 8-1, sem sagt glæsilegur sigur. Næsti leikur hjá 5 flokki er á móti Hetti Egilsstöðum og fer leikurinn fram 21. júlí á Sindravöllum. Ef Sindri vinnur bæði í A og B flokki þá eru þeir orðnir Austurlandsmeistarar og komnir í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Forsvarsmenn Sindra eru nú að vinna að því að fá úrslitakeppnina í Íslandsmótinu hingað til Hafnar enda ætla þeir sér að komast alla leið í Íslalandsmeistaraúrslitin. 4 flokkur stelpna fóru til Egilsstaða og kepptu við Hött og gjörsigruðu með 7-0 á heimavelli Hattar og eiga mikla möguleika á að komast í úrslitin. Þær þurfa aðeins að vinna Þrótt Neskaupsstað, en sá leikur fer fram síðar í þessum mánuði á heimavelli Þróttar. Að sögn þjálfara Sindra, Mica Haseta þá er framtíð Sindra í flestum flokkum mjög björt. Lesa meira
 
Ragnar Frank setur afmælishátíðina

Afmælis-samgönguhátíðin í Skaftafelli - 15.07.2004 Júlí

Um hundrað og fjörutíu manns komu á Samgönguhátíðina í Skaftafelli í gær í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá opnun Skeiðarárbrúar og þar með hringvegarins. Hátíðin byrjaði við hesthúsið, sem er verið að endurbyggja ofan við Bölta, þar sem Ragnar Frank þjóðgarðsvörður bauð gesti velkomna og síðan las Kjartan Ragnarsson leikari frásögu Þórbergs Þórðarsonar “ Vatnadagurinn mikli”. Frá Bölta var haldið inn með brekkunum þar sem vatnadrekinn er til sýnis. Þaðan haldið áfram inn að Morsá og farið á rútunum vegina inneftir varnargörðunum svo langt sem þeir náðu og mun þetta vera í fyrsta sinn sem rútur fara þessa leið. Áður en gengið var inn að nýju göngubrúnni rifjaði Helgi Hallgrímsson fyrrum vegamálastjóri upp sögu framkvæmdanna við Skeiðará fyrir 30 árum. Þar sem rigndi talsvert þarna var gripið til þess ráðs að leggja rútunum þétt saman svo Helgi gæti talað í hátalarakerfi beggja bílanna í einu og allir setið í sínum sætum og hlustað og tókst þetta fyrirkomulag með ágætum. Lesa meira
 
Veðrið á Höfn 15. júlí 2004 kl. 12:05

Fiskvinnslan í góðum gír - 15.07.2004 Júlí

Sólin leikur nú við Hornfirðinga, smábátarnir fóru á sjó í morgun eftir nokkra daga brælu. Humarbátarnir eru nú flestir komnir í frí og mun vinnslan hjá Skinney-Þinganes loka á mánudag þegar farið verður í mánaðar sumarfrí eins og undanfarin ár. Svona rétt fyrir sumarfrí þá er komin hefð á að stafsfólk Skinney-Þinganess fer saman í útileigu og að þessu sinni verður farið í Freysnes, þar verður m.a. farið út í Ingólfshöfða og að sjálfsögðu borðað saman. Saltfiskvinnsla fyrirtækisins mun ekki loka vegna sumarfría þar sem trillubátar halda áfram að landa en þeir hafa verið að veiða mjög vel undanfarið. Hjá Bestfiski er nú unnið alla daga og segir Sívar Árni að það sé útlit fyrir að svo verði áfram. Hjá fyrirtækinu landa nú 11 bátar. Lesa meira
 
Albert Eymundsson bæjarstjóri ásamt hópnum frá Færeyjum (@BA)

Færeyingar frá Suðurey í heimsókn - 15.07.2004 Júlí

Síldarvalsinn á færeysku hljómaði úr Pakkhúsinu í gær og þar voru á ferðinni um 30 félagar úr Lionsklúbbnum í Suðurey sem fóru hringinn og komu hér við. Félagar úr Karlakórnum Jökli tóku á móti Færeyingunum sem voru að endurgjalda heimsókn karlakórsmanna til Færeyja í fyrra vor. Formleg móttaka fór fram í Pakkhúsinu og var þar skipst á gjöfum. Albert Eymundsson bæjarstjóri gaf hópnum m.a. Sögu Hafnar og tók á móti bók um skútuna Jóhönnu sem er samskonar skúta og Færeyska skútan Heimdallur sem fórst hér í innsiglingunni 1941 þegar ís lyfti skútunni upp á Hvanney en mennirnir björguðust allir. Björn Arnarsson tók á móti mynd af samskonar skipi og Heimdalli ásamt afriti af skráningarbókinni sem sýndi hvaða áhöfn hélt með Heimdalli í hina örlagaríku ferð til Íslands. Lesa meira
 
Kartöflugarðarnir við Laxá í Nesjum

Nýjar soðnar kartöflur í pottinn - 14.07.2004 Júlí

Útlit er fyrir mjög góða uppskeru hjá kartöfluræktendum í Hornafirði, einhverjir rétt byrjaðir eða við það að taka upp. Við erum farin að taka upp kartöflur til heimilisins og byrjum á laugardaginn að taka upp til að senda í verslanir segir Birna Jensdóttir á Seljavöllum. Við byrjum á að taka upp gullaugað og endum á premíunni því hún er best til matar þegar hún er orðin gömul. Mér finnst kartöflurnar vera stærri núna enda hefur tíðarfarið verið einstakt síðan sett var niður í vor. Talsvert meira var sett niður af útsæði á Seljavöllum í vor en áður og meira sett undir plast. Það eina sem uppá hefur komið er að vætu vantaði um tíma en slíkt er óvanalegt í Hornafirði. Lesa meira
 
Slökkviliðsvaktin síðustu helgi

Ávallt fjórir á bakvakt yfir sumartímann. - 14.07.2004 Júlí

Með tilkomu jarðgangna undir Almannaskarð stendur til að slökkviliðsmenn fái sérþjálfun vegna bruna eða slysa í jarðgöngum og er stefnt á að halda námskeið vegna þess á næstunni. Yfir sumartímann eru ávallt fjórir menn á bakvakt hjá slökkviliðinu til að tryggja lámarks manskap á staðnum. Það eru ekki launin sem fá menn til að starfa í slökkviliði heldur sú staðreynd að menn vilja leggja sitt á vogarskálina til að tryggja sem best björgun fólks, fénaðar og eigna ef eldur verður laus. Á þessu ári hafa verið tvö útköll vegna elds en þess má geta að slökkviliðið er einnig kallað út verði umferðarslysa í sveitarfélaginu. Lesa meira
 
G. Ágúst Pétursson hjá Frumkvöðlafræðslunni

Lífleg starfsemi Frumkvöðlafræðslunnar - 13.07.2004 Júlí

Frumkvöðlafræðslan sem er til húsa í Frumkvöðlasetrinu í Nýheimum mun standa fyrir námskeiði fyrir kennara á framhaldsskólastigi í frumkvöðlafræðum og hafa þegar skráð sig kennarar frá þeim skólum sem verða með fagið á námsskrá á haustönn. Vegna þessa eru fræðslan að þýða og staðfæra kennslubók í faginu og er nú leitað eftir fjármagni hjá stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum vegna útgáfu kennslubókarinnar. Frumkvöðlafræðslan mun standa fyrir námskeiðum fyrir frumkvöðla vítt og breytt um landið m.a. í Vestmannaeyjum og á Húsavík. Einnig mun Frumkvöðlafræðslan fara í samstarf við bændasamtökin sem felur í sér að vera með ný námskeið um frumkvöðlafræði fyrir bændur í haust. Byrjað verður í Dölum vestur og á Suð-Austurlandi. Lesa meira
 
Bjarni Snorrason í Verslun Steingríms

Verslun á traustum fótum í 58 ár - 13.07.2004 Júlí

Ein er sú verslun á Höfn sem staðið hefur traustum fótum allt frá stofnun hennar fyrir 58 árum er Verslun Steingríms á Skólabrú 2. Steingrímur Sigurðsson stofnaði verslunina árið 1946 og er hún því elsta núverandi kaupmannsverslunin sem verið hefur á Höfn. Á þeim árum hefur ekki verið auðvelt að ná í vörur því skömmtun var á flestu og samgöngur strjálar. Steingrímur byrjaði að versla með nýlenduvörur, eins og það var kallað þ.e. pakkavöru, matvæli, sælgæti og gos. Það var oft þröngt í Lesa meira
 
Framámenn í Skaftafelli (úr myndasafni)

Samgönguhátíð 14.júlí í Skaftafelli. - 13.07.2004 Júlí

Miðvikudaginn 14. júlí n.k. verður þess minnst í Skaftafelli að liðin eru 30 ár frá því að Skeiðarárbrú var tekin í notkun. Samgönguhátíðin hefst kl.14 með því að safnast verður saman við þjónustumiðstöðina þar sem rúta bíður þess að fara með fólkið upp að Bölta en lagt verður á stað þangað stuttu síðar. Þegar komið er að Bölta verður farið að gamla hesthúsinu, sem er nýuppgert, þar verður opnun hátíðarinnar og síðan er upplestur Kjartans Ragnarssonar leikara “Vatnadagurinn mikli”. Kl.15 verður ekið að Vatnadrekanum, hlítt þar á ljúfa harmonikkutóna og drekinn skoðaður undir leiðsögn Péturs Kristjánssonar. Lesa meira
 
Öldungarnir nokkrum árum yngri en í dag (mynd:Hulda Laxdal)

USÚ á landsmóti - 12.07.2004 Júlí

Glæsilegu landsmóti Ungmennafélags Íslands er nýlokið á Sauðárkróki. Það var ekki fjölmennur hópur sem fór héðan en keppt var í tveimur greinum fyrir hönd USÚ. Eitt karlaliðlið keppti í bridds og konulið í blaki. Ekki náðu briddsspilarar í stig en konurnar í blakliðinu enduðu í 10 sæti af 12 liðum og fengu fyrir það 10 stig. Ungmennasambandið Úlfljótur endaði því í liðakeppninni í 22. – 24. sæti ásamt Ungmennasambandi Norður-Þingeyinga og Ungmennafélagi Vesturhlíðar sem einnig voru með 10 stig. Í blakliðinu voru sumir keppendur að keppa á sínu fyrsta landsmóti en aðrir að rifja upp gömul kynni af þessum frábæru mótum eftir 15 – 20 ára fjarveru. Þátttaka í landsmótum UMFÍ er ógleymanleg reynsla öllum þeim sem það upplifa og nú gefst kjörið tækifæri til að leyfa unga fólkinu okkar að kynnast þessum einstöku mótum. Lesa meira
 
Félag ungra sjálfstæðismanna á Höfn

Sumarmót ungra sjálfstæðismanna á Höfn - 12.07.2004 Júlí

Ungir sjálfstæðismenn á Höfn bjóða ungliðum úr kjördæminu til sín í heimsókn um næstu helgi. Mikill metnaður hefur verið lagður í dagskrána og eru allir ungir sjálfstæðismenn á Höfn hvattir til að taka þátt í henni. Skráning fer fram hjá Páli Heimissyni, með því að senda póst á netfangið: pallhe@hi.is Föstudaginn 16. júlí ætla allir að hittast um klukkan 22.30 við Jökulsárlón þar sem farið verður í kvöldsiglingu. Eftir siglinguna verður hungruðum boðið upp á grillaðar pylsur. Eftir að fólk hefur matast verður farið út á Höfn þar sem þeir djammþyrstu geta kynnt sér bæjarlífið. Lesa meira
 
Frá kvikmyndatökunni á Jökulsárlóni

Kvikmynd frá Lóninu á Heimssýninguna í Japan - 12.07.2004 Júlí

Um helgina vor staddir á Jökulsárlóni starfsmenn frá Japönsku fyrirtæki sem sérhæfir sig í að taka kvikmyndir sem eru í mjög sérstökum stærðum. Kvikmyndin sem tekin var verður sýnd á heimssýningunni í Japan á næsta ári og verður hún á tjaldi sem er 50 metrar á breidd og 10 metrar á hæð. Myndatakan fór fram inn við jökul sem er um 5 km. frá Jökulsárbrúnni. Kvikmyndatökumenn fengu bestu hugsanlegu aðstæður, frábært veður og jökullinn skartaði sínu fegursta og voru þeir mjög ánægðir með aðstæður og þá þjónustu sem þeir fengu á lóninu. Kvikmyndatökunni lauk um helgina og þegar þeir yfirgáfu Jökulsárlónið þá leystu þeir starfsmenn lónsins út með gjöfum. Lesa meira
 
Frá leik Sindra og Aftureldingar

Sindramenn áttu leikinn í upphafi en svo ekki meir. - 12.07.2004 Júlí

Sindramenn mættu Aftureldingu í gær á Sindravöllum í öðrum flokki karla, í upphafi áttu Sindramenn leikinn og voru á tímabili tveimur fleiri eftir að tveir leikmenn Aftureldingar höfðu verið reknir af velli, þá skoruðu Gísli og Ingi Jón tvö mörk með stuttu millibili og var þá staðan 2-1. Þegar leikurinn var að verða hálfnaður var eins og Aftureldingarmenn fengu aukinn kraft og sýndu flotta takta og náðu að skora tvö mörk í skyndisóknum og komust yfir í 3-2. Þá var byrjaði að hitna enn meir í leiknum, dómari rak tvo menn Sindra út af vellinum, annar fékk gult spjald, en hinn var rekinn útaf fyrir mjög gróft brot. Þegar aðeins nokkrar mínútur voru eftir af leiknum náði Afturelding að komast í gegnum vörnina hjá Sindramönnum sem var mjög slök í þessum leik og skoruðu 4 markið og tryggðu sér sigur í leiknum. Lesa meira
 
Fisin á Hornafjarðarflugvelli @A. Núpan

Fis lentu á Hornafjarðarflugvelli - 11.07.2004 Júlí

Það hefur ekki farið fram hjá neinum á Höfn sem hefur verið úti að njóta veðurblíðunnar flugumferðin yfir Höfn, þar voru á ferðinni Fisin sem von var á um helgina. Fyrir þá sem lögðu við hlustirnar og litu ekki til himins gætu hafa haldið að verið væri að slá með sláttuvél í öllum görðum á Höfn miðað við hljóðið sem heyrðist. Fisin sem voru 10 alls með einum til tveimur um borð lentu á Hornafjarðarflugvelli um hádegisbilið hver af annarri. Ferðalangarnir komu hingað eftir að hafa haft næturdvöl í Freysnesi í nótt og lögðu þeir þaðan af stað í morgun til Hafnar. Tilgangur ferðarinnar er einnig að skoða þær náttúruperlur sem verða á leið þeirra og hafði hluti af hópnum flogið að Hvannadalshnjúk á leiðinni. Lesa meira
 
Á bryggjunni með hluta af aflanum   @Skarphéðinn Ásbjörnsson

Stangveiðimót út af Hornafirði - 10.07.2004 Júlí

Það er ekki á hverjum degi sem haldið er sjóstangveiðimót á Hornafirði en eitt slíkt fór fram um helgina. Mótið var á vegum Íslandsdeildar EFSA sem er Evrópusamband sjóstangveiðimanna. Félagarnir deildarinnar eru 43, bæði konur og karlar sem búa vítt og breytt um landið. Þetta er þriðja mótið sem haldið er hér á landi, í fyrra var það haldið í Ólafsvík og þar áður á Sauðárkróki. Fyrr á þessu ári hafði Skarphéðinn Ásbjörnsson formaður félagsins samband við Snorra Aðalsteinsson hjá Smábátafélaginu á Hornafirði og kannaði möguleika á því hvort hér væri hægt að halda þetta mót, fékk strax mjög jákvæð viðbrögð og innan tíðar var Snorri búinn að útvega skipstjóra og báta í keppnina sem voru Grétar Vilbergsson á Silfurnesi, Unnsteinn Þráinsson á Sigga Bessa og Óskar Guðmundsson á Kalla. Lesa meira
 
Hópmynd Sambýli Hólabrekku @Meike Burger

Sumar-sveita-kaffi á Hólabrekku - 10.07.2004 Júlí

Á sunnudögum í sumar og í fyrsta skipti sunnudaginn 11. júlí mun sambýlisfólkið í Hólabrekku bjóða upp á sumarsveitakaffi að gömlum sveitasið og verður þar að finna flatbrauð með heimareyktu hangikjöti, jóla- og pönnukökur, kanilsnúða og að sjálfsögðu rjómavöfflur fyrir þá sem ekki vilja fara í hlaðborðið svo eitthvað sé nefnt. Sambýlisfólkið hefur einnig unnið kertakrukkur og dósir sem þarna verða líka til sölu ásamt ýmsu fleiru. Ágóði af þessu mun renna í sjóð sem notaður verður til ferðar sambýlisfólksins til Þýskalands 23. ágúst þar sem hópurinn mun dvelja í viku og skoða sig um í nágrenni Wurtzburg sem er heimaborg Mike Burger sem hefur verið starfsmaður í Hólabrekku síðastliðin 3 ár. Einnig er tilgangur með sveitakaffinu að fá fólk til að koma í sveitina og hitta fólkið sem eru líka sýna sig og sjá aðra eins og sagt er. Lesa meira
 
Gummi í Haga og Eggert Helgi í heyskap hjá Halldóri í Þinganesi í gær.

Heyskapur og pollamót - 09.07.2004 Júlí

Heyskapurinn hefur gengið mjög vel og eru Nesjamenn að verða búnir með fyrri sláttinn og Öræfingar vel komir af stað. Þar sem veður hefur verið með eindæmum hagstætt þá var hægt að slá það snemma, þurft lítinn áburð og er hey með besta móti segir Grétar Már Þorkelsson umsjónarmaður búnaðarsambands A-Skaft sem staddur var á Pollamóti á Akranesi. Frá heyskapnum yfir í Pollamótið, á Akranesi eru nú Írskir dagar og verða þar veitt sérstök verðlaun fyrir rauðhærðasta manninn og þar sem Grétar á þrjá slíka ætlar hann að velja þann rauðhærðasta og setja hann í keppnina “ Þetta er eins og á landbúnaðarsýningu” segir Grétar og hlær. Lesa meira
 
Vilhjálmur Þór Ólafsson mundar lúðunni í veðurblíðunni í gærkvöldi

Góður afli hjá smábátum - 09.07.2004 Júlí

Það hefur gefið mjög vel hjá smábátum síðustu dagana, hafa þeir verið að koma með eitt og hálft til þrjú tonn eftir hvern róður. Farið er út í morgunsárið og landað að kvöldi og mikið líf á bryggjunni þegar verið er að ganga frá eftir daginn og undirbúa fyrir morgundaginn. Afli bátanna sem veiðst hefur fer bæði til Skinney-Þinganess og til Bestfisks. Veður síðustu daga hefur verið með eindæmum gott á sjónum. Það eru ekki bara bátar héðan sem eru að róa frá Hornafirði, nokkrir hafa komið að austan og gert héðan út, von er á bátum að sunnan sem einnig ætla að sækja héðan. Lesa meira
 
Heiðskýrt og flott veður á Höfn

Veðurguðirnir hliðhollir Hornafirði - 08.07.2004 Júlí

Síðustu daga hafa veðurguðirnir verðið okkur sérlega hliðhollir, sól upp á hvern dag og útilit fyrir sólardögum framunda. Hiti hefur rokkað frá 13 gráðum og uppúr. Í Stafafellsfjöllum í Lóni í fyrradag mældist hitinn 24 gráður hjá Gústa Tobba og toppaði Öddi bróðir það um 2 gráður en að hans sögn mældist hitinn hjá sér 26 gráður. Ef fram sem horfir má reikna með því að einhver fyrirtæki fari að loka vegna veðurs hluta úr degi. Á Jökulsárlóni er núna 17 gráður og nánast logn, mikil umferð síðustu daga að sögn Einars Björns. Lesa meira
 
Létt grín á föstudegi, Brad Pitt

Létt grín á föstudegi veldur smá fjaðrafoki - 08.07.2004 Júlí

Eins og flestir lesendur vefsins hafa tekið eftir þá hafa verið grínfréttir af og til á föstudögum undir liðnum “Létt grín” þar hefur verið sagt frá einhverju merkilegu og birt mynd sem unnin er í myndvinnsluforriti af viðburðinum með grínfréttinni. Um Humarhátíðina fór ein slík í loftið undir fyrirsögninni “Brad Pitt á humarhátíð” og fylgdi mynd með þar sem Brad Pitt, Óðinn og Gísli, Hótel Hafnarmenn voru fyrir framan Heinina á Hátíðarsvæðinu. Stuttu eftir að fréttin fór í loftið fóru símarnir að glóa á Hótelinu þar sem sjónvarps- og útvarpsstöðvar voru að leita að leikaranum og var þeim þá tjáð að þetta væri Létt grín sem vefurinn væri með á föstudögum. Tókum menn því vel og viðurkenndu að hafa ekki lesið grínfréttina alla og því ekki tekið eftir að þetta var grínfrétt. Lesa meira
 
Fisvélar munu lenda á Hornafjarðarflugvelli

Vélknúin fis á Hornafjarðarflugvelli um helgina - 07.07.2004 Júlí

Næstu helgi munu félagar í Fisfélagi Reykjavíkur og Fisfélaginu Sléttunni leggja upp í hópflug hringinn í kringum Ísland. Flogið verður meðfram ströndum landsins og með viðkomu á helstu flugvöllum svo við Þjóðgarðinn Skaftafell. Fyrsta stopp félagana verður á Hornafjarðarflugvelli n.k. laugardag og munu þeir hafa næturdvöl í Sveitarfélaginu. Í ferðinni verða einnig skoðaðar helstu perlur landsins og jafnframt verður gerð stutt heimildarmynd um landið og ferðina. “Fisin eru vélknúin og með öllum helstu mælitækjum um borð, það eina sem vantar er þjónustan um borð” sagði Árni Gunnarsson formaður Svifdrekafélags Reykjavíkur þegar Hornafjördur.is ræddi við hann um ferðina. Lesa meira
 
Brúðarbíllinn,  Sólveig Valgerður Sveinbjörnsdóttir og Anna Mekkin Reynisdóttir

Kassabílarallið haldið í 7. skipti - 07.07.2004 Júlí

Kassabílarall Landsbanka Íslands var haldið á Humarhátíð með pomp og prakt að vanda, var þetta í 7. skiptið sem slík keppni er haldin. Bílum fer sífellt fjölgandi og metnaðurinn eykst stöðugt og verk dómara mjög vandasamt. Alls tóku 19 bílar þátt í ár og einnig árið 2003 og er það mikil aukning frá undangengnum árum. Verðlaunum hefur verið fjölgað í kjölfarið. Veitt eru verðlaun fyrir 1.2.3 sæti á tíma og svo vegna flottasta bílsins og síðastliðið 1 ár einnig vegna frumlegasta bílsins. Kassabílarall LÍ er hugmynd Kristínar Gestsdóttur sem kviknaði við undirbúning 100 ára afmælis árið 1997, og hefur verið þróuð áfram af starfsfólki Landsbankans á Höfn og mun halda áfram að þróast á meðan svona góð þátttaka er. Rallið er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Þá er bara að byrja að smíða fyrir komandi rall 2005. Lesa meira
 
Vinningshafar á Humarhátíðarmótinu @Sigurbjörg Karen Hákonardóttir

Vallarmet sett á Silfurnesvelli - 06.07.2004 Júlí

Humarhátíðar-golfmótið fór fram á Silfurnesvelli um helgina og var keppt í kvenn- og karlaflokki. Á mótinu var setti Heiðar Davíð Birgirson frá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ vallarmet, hann bætti gamla metið um eina holu og fór 18 holur á 60 höggum. Skinney-Þinganes bauð upp á verðlaunin á mótinu að sjálfsögðu voru m.a. humar á grillið. 32 manns tóku þátt í mótinu. Úrslit í karlaflokki urðu þau að Kristinn Þór Guðlaugsson var í fyrsta sæti með 38 punkta, Björn Malmquist í öðru með 36 punkta og Heiðar Davíð Bragason í því þriðja með 35 punkta. Í kvennaflokki var Arnheiður Jónsdóttir í fyrsta sæti með 30 punkta., Guðný Helgadóttir í öðru með 24 punkta og Helga B Jóhannesdóttir með 23 punkta. Lesa meira
 
Gunnar Sighvatsson og Eiríkur Már Hansson í nýju flíspeysunum

Grillað og sungið fyrir hátíðargesti - 06.07.2004 Júlí

Á hátíðarsvæðinu um helgina var hægt að fá grillaðan humar og voru grillmeistararnir úr röðum Karlakórsins Jökuls. Þetta er í annað sinn sem kórinn tekur að sér að grilla ofan í hátíðargesti. Í stað þess að grilla bara einu sinni yfir helgina þá var grillað á föstudagskvöldinu, laugardeginum og aftur á laugardagskvöldinu. Kórinn hafði einnig til sölu frosinn humar og nýttu margir sér það að taka með sér poka eða tvo. Humarinn rann ljúflega niður í gesti hátíðarinnar enda voru nokkur góð lög tekin fyrir gestina. Karlakórinn söng við opnun hátíðarinnar á föstudagskvöldinu og mættu kórmenn þar í fyrsta sinn opinberlega í nýjum flíspeysum merktum Karlakórnum Jökli, hver rödd hefur sinn lit og eru þær einnig merktar með nöfnum kórmanna og í hvaða rödd þeir syngja. Lesa meira
 
Blaktandi segl skútunnar í Hornafjðarhöfn

New Nork - Höfn í Hornafirði - 05.07.2004 Júlí

Blaktandi segl í háu mastri skútunnar sem er í Hornafjarðarhöfn mátti sjá víða úr fjarska. Þar er á ferðinni Þýskur auðkýfingur sem hér hafði viðkomu til að fara upp á jökul og á Jökulsárlón. Eins verður skipt um áhöfn á skútunni, nýir fljúga hingað frá þýskalandi og gamla áhöfnin heldur utan. Að sögn eins skipverjans þá er sá háttur hafður á að eigandi skútunnar á mikið af vinum sem eru skipstjórar og stýrimenn, þeir skiptast á að sigla með auðkýfinginn meira fyrir ánægjuna en peningana. Skútan lagði upphaflega af stað frá Þýskalandi, þaðan til New York, hafði viðkomu á nokkrum stöðum áður en hún fór til Skotlands, þaðan til Færeyja og síðan Hornafjarðarhöfn. Lesa meira
 
Magnús og Valdi, Sindramenn við uppsetninguna á auglýsingaskilti

Auglýsingar á vatnstanknum til styrktar Sindra - 05.07.2004 Júlí

Gamli vatnstankurinn fer ekki fram hjá neinum sem keyrir hér inn í bæinn því hann er mjög áberandi og því verið mjög ákjósanlegur fyrir auglýsingar. Tekjur af þeim auglýsingum sem voru á tanknum runnu upp í kostnað við uppbyggingu og endurgerð tanksins á sínum tíma og þeir auglýsendur sem þar voru studdu við uppbygginguna ásamt því að auglýsa sig á áberandi stað. Nú er verið að endurnýja auglýngarnar á tanknum og eru nýir auglýsendur að koma í staðinn fyrir þá gömlu. Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem hefur umsjón með tanknum hefur ákveðið að styrkja Ungmennafélagið Sindra með því að láta hluta þeirra tekna sem koma inn vegna auglýsinga renna til félagsins. Lesa meira
 
Spilað var á 45 borðum á Heimsmeistaramótinu 2004

Björn Arnarson heimsmeistari - 05.07.2004 Júlí

Það var mikill spenna sem ríkti á heimsmeistaramótinu í Hornafjarðarmanna sem haldið var í Íþróttahúsinu um helgina. Alls voru það 135 sem spiluðu á 45 borðum. “Það er stór hluti spilara sem kemur gagngert hingað til Hafnar til að taka þátt í heimsmeistaramótinu ár eftir ár” segir Albert Eymundsson mótsstjóri og frumkvöðull Hornafjarðarmanna. Spiluð var undankeppni sem tók einn og hálfan tíma og yfirleitt nást 6 umferðir í henni en að þessu sinni voru það 5 umferðir. Úr undankeppninni komast 27 í úrslit á 9 borðum og ríkti mikil spenna þar til úrslitin voru ljós, fyrrverandi heimsmeistarar voru meðal þeirra sem komust í úrslitin og duttu út í lokin. Lesa meira
 
Framkvæmdir við Krosseyjarbryggju

Krosseyjarbryggja fær nýja klæðningu - 05.07.2004 Júlí

Byrjað var á framkvæmdum við þilið sem setja á niður við Krosseyjarbryggju í Hornafjarðarhöfn í gær. Krosseyjar bryggja er samtals 185 metrar og verður allt gamla þilið endurnýjað. Verktaki við framkvæmdirnar er Ísar ehf sem er úr Hafnarfirði, fyrirtækið sá m.a. um að koma samskonar þili í Kópavogshöfn. Þessa stundina er verið að borga í klöpp sem þarf að sprengja burt þar sem dýpkað verður og samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Guðjónssyni verkstjóra þá reikna þeir með að það verði hægt að sprengja klöppina í dag. Sól og blíða er á Hornafirði og er lífið við höfnina að komast í sinn rétta farveg eftir hátíðarhöld helgarinnar. Lesa meira
 
Sveina, Þórdís og Ómar við Humarsöluna á Markaðstorginu

Humar hvar sem litið er - 03.07.2004 Júlí

Það fer ekki á milli mála að á Höfn er Humarhátíð, hvar sem litið er þá er hægt að fá humar í einu eða örðu formi. Veitingarstaðirnir á Höfn kappkosta við að bjóða upp á úrval humarrétta hver öðrum betri. Humar frá Skinney- Þinganesi er til sölu í verslun 11-11 í Miðbæ og humar frá Bestfiski er seldur á Markaðinum í Hornabæ og á bryggjusvæðinu. Humar verður grillaður af Karlakórnum Jökli á bryggjusvæðinu í dag kl.16. Fyrir þá sem vilja sjá hann lifandi þá er hann til sýnis í Pakkhúsinu í dag frá kl. 13-18. Það hefur orðið mikil breyting á síðustu árin á Höfn hvað varðar úrval af humar, eftirspurn eftir humarréttum á veitingarstöðum hefur stóraukist og því má segja að Höfn standi vel undir nafni sem humarbærinn. Lesa meira
 
Árni Johnsen í góðum gír á sviðinu

Humarhátíðin fór vel af stað - 02.07.2004 Júlí

Humarhátíð Hornfirðinga hófst með hverfahátíðum kl 17 og kl.19.30 var safnast saman við Heppuskóla áður en haldið var á hafnarsvæðið þar sem Jónas Kristjánsson ráðherra setti hátíðina. Felix Bergsson tók síðan við stjórninni sem hann gerði með glæsibrag. Hann söng og kynnti skemmtiatriði og var hreint út sagt alveg frábær. Hverfin voru hvert með sitt skemmtiatriði og var þeim vel fagnað og verður dómnefnd vandi á höndum með að velja besta hverfið því hvert skemmtiatrið var öðru betra. Karlakór Hornafjarðar söng nokkur lög eins og þeim einum er lagið og því næst var það Eyjamaðurinn Árni Johnsen sem stjórnaði bryggjusöng með prýði. Lesa meira
 
Sjónarhorn myndavélar Hátíðni við hátíðarsvæðið

Fylgst með hátíðarhöldum á vefnum - 02.07.2004 Júlí

Það eru ekki allir sem komast á Humarhátíðnina en vilja gjarnan geta fylgst í flugulíki svona rétt til að sjá af hverju menn eru að missa. Vefmyndavélar geta leyst þetta að hluta og í gegnum tvær slíkar er nú hægt að fylgjast með gestum og gangandi niður á hátíðarsvæðinu í gegnum vefmyndavélar sem þar eru staðsettar. Martölvan og Horn hafa sett upp vél inn í Pakkhúsinu sem vísar á hátíðarsviðið og Hátíðni hefur sett upp vél sem vísar á Pakkhúsið og þá með yfirsýn yfir Heinina og göngusvæðið milli pakkhússins og Hafnarvogarinnar. Þeir sem vilja taka myndir af því sem fram fer frá vél Hátíðni geta gert það með því að velja “Capture”, hægrismella og “Save Picture As..”, gefa myndinni nafn og “OK”. Lesa meira
 
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun

Aldrei verið eins stór markaður - 02.07.2004 Júlí

Hornabæjar-markaðurinn verður opinn í dag og morgun og þar kennir margra fleiri grasa en verið hefur frá upphafi markaðarins. Það er alveg brjálað að gera sagði Lísa Þorsteins, þegar hún var spurð frétta af markaðsmálum. Það hefur aldrei verið eins mikið um að vera hér hjá okkur í sambandi við markaðinn eins og núna og það er fullt af nýju sem ekki hefur verið áður og nýir söluaðilar segir Lísa. Handverkskonur frá Stöðvarfirði verða t.d.með úrval af hannyrðavörum á góðu verði, töskur, íslenskt jurtakrem og að ógleymdum Stöðvarfjarðar-harðfiskinum,sem er einn sá besti. Fyrsta kartöfluuppskera ársins verður þar til sölu. Lesa meira
 
Haukafell, Magnús Jónasson (úr myndasafni)

Árlega fjölskyldu-skógargangan á Suðurlandi - 02.07.2004 Júlí

Á morgun laugardaginn 3. júlí verður árleg fjölskyldu-skógarganga Félags skógarbænda á Suðurlandi.og að þessu sinni verður farið í skógræktina í Prestbakkakoti. Þátttakendur mæta í Prestbakkakoti hjá Sólveigu Pálsdóttur og Jóni Þorbergssyni. Þaðan verður lagt af stað kl.16.00 og gengið í skógræktina og hún skoðuð, en þangað er um einn eða einn og hálf tíma gangur. Skógræktin sem þarna verður skoðuð er 10.ára. Að göngu lokinni verður sameiginlegt grill og hver kemur með sinn mat á grillið. Heitt kaffi verður á könnunni og drykkir fyrir börnin. Það eru allir velkomnir í skógargönguna segir Agnes Geirdal hjá Suðurlandsskógum. og svona til upplýsingar fyrir þá sem ekki vita, þá er Prestbakkakot í Vestur- Skaftafellssýslu rétt austan við Kirkjubæjarklaustur. Lesa meira
 
Öryggisborði við Ludvig Andersen

Öryggiseftirlit á hafnarsvæðinu - 01.07.2004 Júlí

Frá og með deginum í dag 1. júlí tóku gildi reglur um siglingavernd vegna skipa sem koma að utan eða sigla á erlendar hafnir. Þeir sem hafa farið um hafnarsvæðið hér á Höfn hafa tekið eftir því að búið er að strengja borða sem girða af svæðið við erlendu skipin sem þar eru. Starfsmenn Hornafjarðarhafnar þurfa nú að fylgja eftir hafnarvermd samkvæmt Alþjóða signingarmálastofnunni og gengur verndin út á það að takmarka aðgang um að skipunum fyrir óviðkomandi og um leið hafa eftirlit með því að þeir sem fara um borð eigi þangað erindi. Þetta er gert með því að afmarka svæðið með girðingum eða borðum. Þeir aðilar sem þurfa að vinna í kringum skipin við t.d. uppskipun þurfa að fá sérstakan passa svo að áhafnarmiðlimur skipsins sjái að þarna er á ferðinni aðili sem hefur til þess leyfi. Lesa meira
 
Valdís Kjartansdóttir og Jóna Margrét Jóhannesdóttir í Króm og Hvítt

Króm og Hvítt flytur á Hafnarbraut - 01.07.2004 Júlí

Verslunin Króm og Hvítt flytur á næstunni á Hafnarbraut 34 þar sem Orkuverið var til húsa. Við opnum verslunina þar í byrjun ágúst en allt sem tilheyrir pípulögnunum verður áfram á Álaleiru 7 segir Valdís Kjartansdóttir. Vegna flutninganna verður lokað hjá okkur hér um eða upp úr 16.júlí. Það verður ánægjulegt að sjá að aftur verði komin starfsemi í Orkuvers húsið og til þæginda fyrir viðskiptavinina sem sumum finnst langt út á Álaleiru til að versla eða kynna sér hvað er á boðstólum. Lesa meira
 
Hildur Þórsdóttir og Steinunn Hannesdóttir skálaverðir í Kollumúla

Ráðnir skálaverðir í Kollumúla - 01.07.2004 Júlí

Nú hefur í fyrsta skipti verið ráðinn skálavörður inni í Kollumúla í sumar, Steinunn Hannesdóttir ættuð frá Hólabrekku á Mýrum. Þessu starfi hefur verið sinnt af sjálfboðaliðum eftir því sem hægt hefur verið. Steinunn er ekki ókunnug óbyggðalífinu því hún hefur verið landvörður í friðlandinu norðan Vatnajökuls og í Herðubreiðarlindum tvö sumur og skálavörður í Kverkfjöllum í 10 daga í fyrrasumar. Steinunn segir að starf sitt verði að taka á móti gestum, bjóða þá velkomna,veita þeim aðstoð og upplýsingar, kynna þeim umgengis-og skálareglur og fylgja því eftir. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica